Grunnþættir menntunar
57
kaffihúsafundi, í því skyni að fá fram
sjónarmið sem flestra. Niðurstöður
fundarins eru svo notaðar til að gera
áætlanir um aðgerðir til úrbóta.
Allt starfsfólk skóla ætti að velta
fyrir sér eigin viðhorfum og hugleiða,
þegar það mætir nýjum nemanda eða
einhverjum úr hans nánasta hring,
hvað það sjái fyrst: einstaklinginn
eða kynið, persónuna eða þjóðernið,
foreldrana eða þjóðfélagsstigann,
barnið eða hjólastólinn. Kennarar
keppast auðvitað við að sinna öllum
nemendum jafnt og heilindi þeirra
í þeim efnum þarf ekki að draga í
efa. Samt er alltaf gott að staldra við
öðru hverju og íhuga hvort einhvers
staðar sé pottur brotinn og hvort
ekki megi gera betur.
Skólasafnið
er kjörinn vettvangur til þess að taka á jafnréttisfræðslu. Starfsfólk skólasafnsins getur
litið yfir bókakostinn og skoðað hvort þar halli á annað kynið eða aðra hópa hvað snertir
höfunda og ætlaða lesendur. Þá má skoða sýnileika bóka sem fjalla um alla þá sem
endurspegla fjölbreytileika samfélagsins. Hægt er að stilla upp ákveðnum bókum,
kvikmyndum, vefefni, ýmiss konar gögnum og efni eftir nemendur til að vekja athygli
á ákveðnum hópum eða málaflokkum og skipta út eftir þemum þegar best hentar.
Jafnréttissjónarmið má líka hafa að leiðarljósi á sögustundum, samkomum á safni og
við heimildaleit, úrvinnslu gagna og hvers konar miðlun. Vef skólans, skýrslur og annað
kynningarefni ætti alltaf að skoða með kynjagleraugum.
Lifandi bókasafn
Skemmtileg leið til þess að skapa vettvang
til jafnréttisfræðslu fyrir nemendur gæti
verið „lifandi bókasafn“ um jafnréttismál sem
hópur nemenda tekur að sér að skipuleggja
og framkvæma fyrir samnemendur sína.
Safnið starfar nákvæmlega eins og venjulegt
bókasafn og lesendur koma og fá „lánaða“
bók í tiltekinn tíma. Sá munur er þó á að
bækurnar í þessu safni eru börn eða unglingar
sem eru tilbúin til að deila reynslu sinni með
lesendunum. Í bókasafninu geta bækurnar
ekki aðeins talað, heldur einnig svarað
spurningum lesandans og þar að auki spurt
spurninga og aflað sér fróðleiks. Hópur sem
skipuleggur slíkt bókasafn velur þema, fær
bækur til þess að mæta og heldur utan um
viðburðinn.
16
1...,49,50,51,52,53,54,55,56,57,58 60,61,62,63,64,65,66,67,68,69,...72