JAFNRÉTTI
50
er að rýna í hvort það geti verið auðveldara eða jafnvel erfiðara að vera öðruvísi í
minni samfélögum eða stærri.
Dagsetningar
17. október – Alþjóðadagur helgaður útrýmingu fátæktar
8. nóvember – Eineltisdagurinn
Ítarefni
Hagstofan
. http://
.
Grimmd
(e.
Bully
). Heimildarmynd sem segir sögur fimm bandarískra ungmenna sem þurftu að þola mikið
einelti og hvernig sum þeirra tókust á við það.
Kompás – Handbók um mannréttindi fyrir ungt fólk
. Höfundar Patricia Brander ofl. (2009).
.
Áhrif búsetu
Börn og unglingar ræða saman og skrá hvaða áhrif þeir telja að það hafi að búa í borg,
þorpi eða sveit. Hefur búseta mismunandi áhrif eftir kyni? Hægt er að ræða hverjir séu
mögulegir kostir og gallar þess að búa í borg, bæ eða dreifbýli, hvernig menningu og
mannlífi á þessum stöðum sé háttað. Hvað geta samfélög gert til þess að draga úr
neikvæðri sýn á önnur samfélög og efla jákvæða þætti í eigin samfélagi? Gagnlegt getur
verið að eiga samræður við börn og unglinga á landsbyggðinni og í þéttbýlinu um kosti
þess að búa í sinni heimabyggð.
Vefur Hagstofunnar
Nemendur geta notað vef Hagstofunnar til að skoða muninn á samsetningu íbúa, t.d.
á Vestfjörðum eða á Austurlandi í samanburði við höfuðborgarsvæðið. Hvers vegna er
svona mikill munur á aldurshópum á þessum svæðum? Hver er munurinn hvað snertir
kynjahlutföll? Hvaða áhrif hefur það á samfélög þegar aldurs- og kynjahlutföll verða eins
ójöfn og raun ber vitni? Hvaða ljósi varpar hugtakið eða grunnþátturinn sjálfbærni á þessi
mál?