Grunnþættir menntunar
45
er miklu meiri en áður var. Á Íslandi og öðrumNorðurlöndum hefur stéttarmunur
ekki afgerandi áhrif á námsstöðu nemenda en á síðustu árum hafa þessi áhrif
aukist. Í rannsókn Hlínar Kristbergsdóttur og Jóns Gunnars Bernburg (2011) á
félagsgerð skólahverfa í þéttbýli á Íslandi kom í ljós að efnahagslegir erfiðleikar
í fjölskyldum hafa áhrif á velferð unglinga. Þar kemur fram að unglingur frá
fátæku heimili er líklegri til þess að verða fyrir einelti en þeir sem koma frá efnuðu
heimili. Fátækt getur valdið félagslegri einangrun, því unglingarnir eru þá síður í
stakk búnir að taka þátt í neyslusamfélagi jafningjanna. Þeir geta ekki tekið þátt í
samkeppni jafningja um lífsstíl.
Þetta vekur spurningar um þann hluta skólastarfsins sem er að einhverju leyti
kostaður af foreldrum. Hefur innkaupalistinn sem börn og unglingar fá afhentan
í skólabyrjun mikil útgjöld í för með sér, sem hugsanlega væri hægt að dreifa á
lengri tíma? Hafa allir ráð á að greiða fyrir vistun að loknum skóladegi eða kaupa
hádegisverð? Geta allir borgað fyrir skólaferðalög og skólabúðir? Hafa allir efni
á að taka þátt í félagsstarfi eins og bingó og árshátíð? Við skipulag skólastarfsins
Borðspil með nýjum reglum
Útbúin þrjú tveggja teninga sett (kaupa má teninga með tómar hliðar). Fyrsta settið er
venjulegt teningasett. Á öðru teningasetti er tölunum 1 og 2 skipt út fyrir 5 og 6. Á þriðja
settinu eru hvergi talan 6 og á annan teninginn vantar töluna 5, þar eru auðir reitir í stað
tölunnar 6 og ás í stað tölunnar 5.
Þátttakendur draga um teningasett. Þeir sem eru með annað settið fá líka aukalega
tvöfalt það sem aðrir fá fyrir að fara yfir byrjunarreit.
Leikið spilið og ræðið svo um mismunun og forréttindi, t.d. hvort það að fæðast á Íslandi
sé öðruvísi en að fæðast annars staðar. Með unglingum er hægt að ræða um áhrif
félagslegrar stöðu á möguleika fólks til að komast áfram. Unglingar geta jafnvel samið
spjöld þar sem kveðið er á um umbun og refsingar í spilinu og rætt umbun og refsingar
fyrir ýmsa samfélagshópa.
Í tengslum við spilið og umræðurnar mætti taka fyrir ljóð Steins Steinarr og fleiri verk
sem varpa ljósi á mismunun og forréttindi.
1...,37,38,39,40,41,42,43,44,45,46 48,49,50,51,52,53,54,55,56,57,...72