JAFNRÉTTI
36
og allir aðrir með sína fjölbreytilegu
persónudrætti. Langflestir þekkja einhvern
sem býr við einhvers konar skerðingu eða
fötlun, frænku með heyrnartæki, afa með
gigt, bróður með námsörðugleika eða
þunglynda vinkonu. Skerðing verður í raun
ekki vandamál nema þar sem samfélagið
gerir ekki ráð fyrir fólki með skerðingar.
Umhverfið og viðhorf sem þar ríkja
verður fólki oft meiri fötlun en líkamlegt
eða andlegt ástand.
Fötlun og félagslegt réttlæti
Fjalla þarf um búsetu fólks með fatlanir og hvernig þróun hennar hefur haft áhrif á
lífsgæði. Einnig er vert að skoða hvernig skólagöngu fólks með fatlanir hefur verið
háttað í tímans rás. Til að mynda má ætla að samfélaginu hafi verið umhugað um
að rjúfa einangrun þeirra barna sem ekki heyra þegar litið er til þess að þau börn
voru fyrst allra barna skylduð í skóla á Íslandi.
12
Saga réttindabaráttu, táknmáls og
skóla fyrir heyrnarlausa er merkileg og lærdómsrík um margt og aðrir hópar fatlaðra
hafa líka sótt fram á mörgum sviðum. Freyja
Haraldsdóttir er öflug talskona hóps, sem
hefur hingað til ekki verið hávær, og gerir
kröfu til að hennar líf sé jafn mikilvægt
og líf samborgaranna. Starfsfólk skóla og
nemendur mættu að rýna í sögu og skrif
fólks eins og Freyju, skoða rökin sem þar
eru dregin fram og óskir um að lifa því lífi
sem fólk kýs sér sjálft, því sjónarmiði að
mesta fötlunin sé fólgin í samfélaginu sem
ekki gerir ráð fyrir henni.
Götuhernaðurinn
Í Ný-ung, ungliðahreyfingu Sjálfs
bjargar, stóð hópur unglinga fyrir átaki
til vitundarvakningar um aðstæður
hreyfihamlaðra með það að markmiði
að bæta ímynd þess hóps. Fatlaðir
unglingar stóðu fyrir margvíslegum
uppákomum og bjuggu til stuttmyndir
þar sem þeir gerðu stólpagrín að
samspili fötlunar og samfélags í sínu
eigin lífi og birtu á vefnum
oryrki.is
og
fésbókarsíðu hópsins.
Fósturskimun
Á Íslandi er fósturskimun veruleiki
flestra foreldra. Margir telja að með
auknum fósturskimunum minnki
margbreytileiki mannkynsins. Í fram
haldsskólum gætu umræður og
verkefni sem snúa að fósturskimun
– kostum hennar og göllum í
siðferðilegu ljósi – vakið áhuga og
verið góður liður í námi.