Grunnþættir menntunar
39
Aldur
Skilningur okkar á því hverjir eru börn og hverjir ekki hefur tekið miklum
breytingum á liðinni öld. Fyrir tæpri öld urðu börn fullorðin við fermingu,
gamla fólkið bjó margt með sínum fjölskyldum og allir aldurshópar höfðu
hlutverki að gegna í almennu heimilishaldi. Síðan hefur lífaldur fólks lengst og
fjölskyldumynstur breyst. Sambúð þriggja kynslóða heyrir til undantekninga. Fólk
getur vænst þess að lifa lengur og búa við betri heilsu en áður. Á sama tíma hefur
sýn okkar á börnin breyst, nú eru allir börn að 18 ára aldri samkvæmt skilningi
laga. Þá verður mikil breyting á högum barnsins og fjölskyldu þess. Þá hættir
barnið að vera barn og verður þess í stað fullorðinn einstaklingur með full yfirráð
og ábyrgð á fjármálum sínum, kosningarétt og forræði í eigin málum.
Með tilkomu
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
fékk hugtakið barn nýja
merkingu. Réttindi barna og skyldur breyttust. Það er með öðrum orðum
vegna
Barnasáttmálans
að nú er ætlast til að börn og unglingar taki þátt í mati og
námskrárgerð í sínum skólum. Önnur áherslubreyting er að nú er ekki rætt um
rannsóknir
á
börnum
heldur um rannsóknir
með börnum
. Nú skal leita eftir upplýstu
samþykki barna við rannsóknir og kannanir sem ekki eru hluti af venjubundnu
skólastarfi. Ekki nægir að fá samþykki forráðamanna. Á sama tíma og börn
verða eldri samkvæmt skilgreiningu hefur réttur þeirra til að móta umhverfi sitt
aukist. Þegar rætt er um gerendahæfni í þessu sambandi er átt við hæfni barna
og unglinga til þess að vinna úr eigin reynslu, skilja og hafa áhrif á umhverfi sitt
og menningu. Á öllum skólastigum þarf að fjalla um réttindi og skyldur barna
samkvæmt
Barnasáttmálanum
. Þá er áhugavert að skoða hann með hliðsjón af aldri
barna og hvernig staða þeirra breytist með hækkandi aldri. Í
Barnasáttmálanum
er
skýrt tekið fram að börn eru borgarar frá því að þau fæðast, þau eru ekki verðandi
borgarar eða upprennandi borgarar. Hins vegar er ljóst að borgari á barnsaldri er
háðari umhverfi sínu en fullorðinn borgari og að aldraður borgari er oft háðari
umhverfi sínu og samborgurum en borgari á miðjum aldri. Þrátt fyrir að barnið
sé borgari með ákveðin réttindi og skyldur er ekki verið að fría þá fullorðnu allri
ábyrgð, þvert á móti.
5
1...,31,32,33,34,35,36,37,38,39,40 42,43,44,45,46,47,48,49,50,51,...72