JAFNRÉTTI
44
Stétt og búseta
Að sigra heiminn
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði.)
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
Steinn Steinarr
Löngum hefur verið rætt um að íslenskt samfélag sé einsleitt og jafnvel stéttlaust.
Engu að síður hljótum við að spyrja hvort engir hópar hafi lægri eða hærri stöðu
en aðrir í íslensku samfélagi og þá í hvaða skilningi. Til að átta sig á stéttarhugtakinu
er hægt að skoða hvað það er sem skilur á milli hópa á Íslandi, hvort stéttarstaða
snúist um efnahag, menntun, fjölskyldu- og vinabönd eða sambland af öllu
ofangreindu og jafnvel fleiri atriðum eins og uppruna, þjóðerni og búsetu. Stétt
eða þjóðfélagsstaða er bundin tíma og stað og háð mörgum þáttum. Sem dæmi
má nefna að innflytjendur eru ekki allir á sama báti. Innflytjandi úr hástétt í sínu
heimalandi getur frekar átt von á að fá góðar viðtökur og vænlega starfsmöguleika
en sá sem er af lágum stigum eða bjó við lítil efni í heimalandinu. Efnaður
einstaklingur með fötlun getur veitt sér ýmsa hluti sem fátækur einstaklingur með
fötlun getur einungis látið sig dreyma um og þannig mætti lengi telja.
Efnahagsauður
Möguleikar einstaklinga og aðgengi að samfélagslegum gæðum eru oft háð
stéttarstöðu þeirra og þjóðfélagshópi. Engum dylst að fjárráð fólks eru afar
misjöfn, bilið á milli lægstu launa og hinna hæstu hefur stóraukist og skuldabyrði
6
1...,36,37,38,39,40,41,42,43,44,45 47,48,49,50,51,52,53,54,55,56,...72