JAFNRÉTTI
54
eða starfsmaður skóla ætti að leiða þetta hjá sér og treysta því að einhver annar
sjái um jafnréttið heldur verður hver og einn að leggja sitt af mörkum.
Skýrt dæmi um áhrif allra greinasviða á jafnrétti eru námsbækur og önnur
námsgögn. Margir kennarar, höfundar texta eða mynda og útgefendur gá að sér,
eru alltaf með jafnréttisgleraugun uppi en dæmi eru um efni þar sem sýn á kyn
eða aðra þjóðfélagshópa endurspeglar og ýtir jafnvel undir mismunun, þöggun
Verkefnið Raddir
Fræðafólk frá nokkrum Evrópulöndum hefur þróað aðferð kallaða Raddir. Aðferðin
er stundum nefnd samfélagsþátttökunám (e.
service learning
) og byggist á
samstarfi skóla við stofnanir og samtök um raunveruleg samfélagsverkefni.
Dæmi um verkefni sem byggir að einhverju leyti á þessari aðferð er verkefni á
vegum Hjálparstarfs kirkjunnar þar sem fermingarbörn safna fyrir vatnsbrunnum
í Afríku. Önnur verkefni geta verið í samvinnu við félagsstarf eldri borgara,
Mannréttindaskrifstofu, Barnaheill, SOS barnaþorp, Þróunarsamvinnustofnun,
Jafnréttisstofu og þar fram eftir götum. Nám og verkefni byggð á þessari aðferð
eiga nokkur atriði sammerkt:
Verkefnin eru jákvæð og skipta þátttakendur máli.
Byggt er á samstarfi fremur en samkeppni.
Tekið er á margþættum viðfangsefnum í flóknu umhverfi fremur en
einföldum málum.
Boðið er upp á tækifæri fyrir þátttakendur til að ræða og setja fram
mögulegar lausnir.
Nám ristir djúpt vegna þess að árangur sést strax og er raunverulegur.
Verkefnin verða oft merkingarbær fyrir þátttakendur á persónulegum
grunni, geta ögrað fyrri hugmyndum eða gildismati og kalla stundum fram
tilfinningabundin viðbrögð.
Aðferðafræðin byggist á samstarfi, hópvinnu og lýðræðislegum
vinnubrögðum.
Á netinu er hægt að nálgast frekari upplýsingar og hugmyndir um verkefni.
15
1...,46,47,48,49,50,51,52,53,54,55 57,58,59,60,61,62,63,64,65,66,...72