JAFNRÉTTI
64
lokaorð
Jafnrétti er grunnþáttur í menntun og skólastarfi. Jafnréttismenntun þarf að vera
í traustum farvegi í hverjum skóla og jafnrétti á að lita allt skólastarf. Til þess
að svo megi verða þarf gagnrýna sýn og hvetjandi umræðu sem snertir öll svið
skólastarfsins. Börn og unglingar þurfa hvatningu og stuðning svo þau geti látið
til sín taka á sínum forsendum og átt í farsælu samstarfi við aðra. Þau þurfa að
hafa trú á eigin getu og treysta því að þau hafi margt til málanna að leggja en læra
um leið að taka tillit til annarra. Ríkur hluti af barna- og unglingamenningu eru
leikir og athafnir í frjálsum tíma á vegum skólans, í útivist og frímínútum. Yngri
börn læra af þeim eldri og samskipti aldurshópa eru mikilvæg. Skólinn þarf að
stuðla að góðum samskiptum og fá bæði börn og unglinga til að leggja sitt af
mörkum á jafnréttisgrundvelli. Börn og unglingar þurfa að finna að á þau sé
hlustað og skoðanir þeirra virtar í leik og starfi. Þau eru sjálf býsna glögg að koma
auga á hvar pottur er brotinn í jafnréttismálum, átta sig furðu vel á hvernig á því
stendur og sjá hvað það hefur í för með sér. Miklu skiptir að fá þau til að leita
svara við því hvar og hvenær fólki er mismunað, vekja spurningar um jafnrétti
og hjálpa þeim að greina sjálf og í góðri samvinnu hvað megi gera betur. Það
er von okkar að jafnréttisheftið komi að sem mestu gagni og verði til að stuðla
að jafnrétti í skólum, umræðum og þróunarstarfi. Við vonum að það geti orðið
öflugu og gróskumiklu skólasamfélagi eitt af mörgum verkfærum að grípa til í
verkfærakistunni hvenær sem best hentar.
Þakkir
Hafsteinn Karlsson og Torfi Hjartarson fá sérstakar þakkir fyrir yfirlestur, ráð og ábendingar við gerð
ritsins. Eftirtaldir eiga einnig þakkir skilið fyrir ábendingar, samræður og yfirlestur: Brynhildur Heiðar-
og Ómarsdóttir, Eyrún María Rúnarsdóttir, Guðný Guðbjörnsdóttir, Hanna Ragnarsdóttir, Hanna Björg
Sigurjónsdóttir, Harpa Rut Hilmarsdóttir, Hermína Gunnþórsdóttir, Hrefna K. Óskarsdóttir, Ingólfur Á.
Jóhannesson, Jóna Pálsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Sesselja Snævarr og Sigrún Ágústdóttir.
8