JAFNRÉTTI
62
Ein leið til að bæta skólabrag er að fá börn og unglinga til að búa til samskiptareglur,
gefa þeim tækifæri til að taka þátt í verkefnavali, hlutverkavali og koma að
ákvörðunum um hvernig þau vinna og skila verkefnum. Með umræðu í hópi
barna eða bekk má beina athygli að framlagi allra í hópnum og sýna fram á að
sjónarmið hvers og eins hefur þýðingu.
Önnur leið er að skoða innviði skólastarfsins með augum barna og unglinga.
Fá þau til að setja upp jafnréttisgleraugun og meta ýmsa þætti námsins, skólastarfið
almennt og samskipti sín í milli. Þau vilja gjarnan hafa eitthvað um skólaumhverfi
sitt að segja og mikilvægt að fá þau til þess að taka eins mikinn þátt í að móta það
og unnt er.
Gátlisti til umhugsunar og umræðu
um jafnrétti í skólum
Myndir og upplýsingar á veggjum
•
Hvernig birtast konur og karlar í upplýsingum og myndefni? Eru þar dæmi
um staðlaðar kynímyndir?
•
Taka konur og karlar virkan þátt í því sem fram fer á myndunum?
•
Hvaða störfum gegna karlar og konur á myndunum?
•
Fá verk bæði drengja og stúlkna að njóta sín á veggjum? Hallar á annað
hvort kynið í þeim efnum?
Bækur og textar
•
Eru staðlaðar kynímyndir í því sem lesið er fyrir börnin?
•
Er jafnvægis milli kynja gætt í bókum og söngvum? Hverjar eru
fyrirmyndirnar þar (búa feður og mæður til mat og bjarga prinsar og
prinsessur hvert öðru)?
•
Eru lesnar sögur og aðrir textar þar sem karlar og konur eru ekki í
hefðbundnum hlutverkum?
•
Er fjallað um vináttu og leik barna af báðum kynjum?
•
Draga lestextar og bækur upp jákvæða mynd af bæði konum og körlum?