JAFNRÉTTI
52
Algengt er að fólk átti sig ekki á staðalmyndum sem stýra hegðun þess. Í rannsókn
Lynch og Lodge (2002) hefur til að mynda komið fram að samskipti kennara við
nemendur í grunnskóla eru í þremur af hverjum fjórum tilfellum við drengi.
Strákar sem þykja til fyrirmyndar eða uppfylla ekki skilyrði skólans um æskilega
hegðun, viðhorf, eða námsgetu virðast fá mikla athygli og kalla á viðbrögð en
það sama á síður við um stelpurnar. Fram kemur að kennarar ávarpa stráka frekar
með nafni en stelpur sem hóp.
Hvað sjáum við með kynjagleraugunum?
Hvaða orðræða er ráðandi meðal barna og unglinga um karlmennsku
og kvenleika? Hvaða kynjahugmyndir má finna í flestum námshópum
og hvaða kynjahugmyndir greina nemendur í vinahópa? Eru vinahópar
kynjablandaðir? Eða taka þeir mið af konum og körlum sem andstæðum
með ólík hlutverk og ólíkar þarfir?
Hvaða staðalmyndum af kvenleika og karlmennsku heldur skólinn á lofti?
Hvers konar hugmyndir koma nemendur með inn í skólann og hvað af
þeim má sjá í hegðun þeirra í kennslustofunni og á leikvellinum? Er gert
ráð fyrir að skólinn spegli samfélagið eða leggur hann sitt af mörkum til að
opna nýja heima með nemendum?
Hvers væntir skólinn af kennurum sínum í þessum efnum? Hvernig bregst
þú sem fagmaður við þeim nemendum sem reyna að ögra viðteknum
hugmyndum um karlmennsku og kvenleika? Hvernig er jafnræði milli
nemenda hvað snertir athygli, rými og áhrif í skólastofunni eða í
verkefnum? Ert þú sem fagmaður vakandi fyrir því að finna kvenlæga og
karllæga styrkleika hjá nemendum af báðum kynjum, hampa þeim og vekja
á þeim athygli?
Skiptir kyn kennarans máli? Rannsóknir hafa sýnt að kyn kennara skiptir
ekki máli fyrir námsárangur nemenda en mikilvægt er að karlar jafnt sem
konur taki þátt í uppeldi og menntun barna.
1...,44,45,46,47,48,49,50,51,52,53 55,56,57,58,59,60,61,62,63,64,...72