JAFNRÉTTI
58
Góður kennari er næmur á fjöl­
breytileika í barna- og unglingahópnum
og gætir þess að allir taki virkan þátt
í námi á eigin forsendum. Fjölbreytt
viðfangsefni og kennsluaðferðir eru
lykillinn að því að koma til móts við
ólíkar þarfir einstaklinga. Viðhorf og
þekking starfsfólks geta skapað góðan
anda, stuðlað að góðum samskiptum og
góðri skólamenningu. Þannig verður til
góður jarðvegur fyrir jafnrétti.
Kennarar hafa mótandi áhrif á
samskipti barna og unglinga og þeir
þurfa að gefa sér tíma til að vinna með
samskipti og skólabrag. Það skilar sér í
þægilegra andrúmslofti og betra námsumhverfi. Þeir þurfa að huga að því hvert
athyglin beinist, hver fær orðið, hvaða hugmyndir er hlustað á og á hverja er
sussað. Það er líka mikilvægt fyrir kennara að velta fyrir sér hvaða menningu í
hópi barna og unglinga þeir gefa rými og tíma og hvernig að því er staðið. Með
því að rýna eigin viðhorf og vinnubrögð getur kennari komið á samskiptum í
kennsluumhverfinu þar sem allir fá athygli og viðurkenningu.
Margar skemmtilegar leiðir eru til þess
að flétta umfjöllun um jafnréttismál inn
í námsgreinar. Á efstu stigum grunn­
skólans og í framhaldsskólum getur
stærðfræðikennari sótt til Hagstofunnar
tölur sem varða kynja­jafnrétti og tengt
þær jafnréttisumræðu í kennslu hjá sér á
meðan tungumálakennarinn finnur til ljóð
eða sögur sem brjóta upp staðalmyndir
minnihlutahópa. Á yngri stigum er
hægt að velta fyrir sér barnabókum,
sögupersónum í bókum, litavali, leikjum
og viðfangsefnum barna.
1...,50,51,52,53,54,55,56,57,58,59 61,62,63,64,65,66,67,68,69,70,...72