Grunnþættir menntunar
63
Húsakynni og dagskipulag
•
Er þess gætt að stelpur og strákar hafi tækifæri til að leika sér, vinna
saman og mynda vináttutengsl?
•
Höfðar leikfangakostur leikskólans til beggja kynja?
Samskipti og framkoma við börn
•
Er talað á sama hátt til stelpna og stráka?
•
Er reynt að tala til barna/nemenda í stað þess að tala til hópa eftir kyni?
•
Eru strákar ávarpaðir með nafni en stelpurnar sem hópur? („Hvað heldur
þú, Sigurður?“„En þú, Helgi?“ „Hvað segið þið, stelpur? “)
•
Er tekið á því þegar annað kynið yfirskyggir hitt?
•
Fá stelpur og strákar sömu hvatningu þegar þau fást við hörð eða mjúk
viðfangsefni eða snarpa og rólega leiki?
•
Eru bæði drengir og stúlkur hvött til að vera hjálpsöm hvert við annað?
•
Er ólíkt tekið á stúlkum og drengjum þegar þau sýna yfirgang eða
hlédrægni?
•
Fá stelpur og strákar sömu hvatningu þegar kallað er eftir snyrtimennsku
og tiltekt?
•
Fá stelpur og strákar álíka mikla athygli?
•
Eru stelpur og strákar ámóta virk í leik, umræðum og samstarfi?
•
Fá stelpur og strákar ámóta gagnrýni og eru gerðar sömu kröfur til þeirra?
•
Er notað orðfæri sem upphefur eða niðurlægir annað kynið?
Foreldrasamstarf
•
Við hvort foreldrið er haft samband þegar börnin veikjast eða eitthvað
kemur upp á og láta þarf foreldra vita?
•
Fá feður og mæður jafn mikla hvatningu til að mæta á foreldrafundi og í
foreldraviðtöl eða taka þátt í öðru því sem ætlað er foreldrum?
•
Eru bæði feður og mæður hvött til að taka sæti í nefndum og ráðum sem
tengjast skólastarfinu?
•
Höfða auglýsingar og upplýsingar til foreldra jafnt til feðra og mæðra?
Byggt á gátlista verkefnisins Jafnrétti í skólum