Grunnþættir menntunar
55
eða vafasamar staðalímyndir. Tilhneigingin til að taka dæmi af körlum fremur
en konum eða láta þá leika hlutverk gerenda í texta og myndefni er rík og margir
hópar hverfa í skuggann ef alltaf er teflt fram dæmum af ófötluðu fólki með
ljósan hörundslit, í hefðbundnum kynhlutverkum eða viðteknu fjölskyldumynstri.
Hættan er þá sú að aðrir fái ekki réttláta umfjöllun og viðurkenningu við hæfi.
Við þessu er auðvelt að sporna með gátlista sem beinir athygli að mögulegri
mismunun af þessu tagi.
Námsbókahöfundum er oft mikill vandi á höndum því orðræða vísindanna
sem þeir byggja efni sitt á getur verið mörkuð af sögulegri kynjaskekkju
og rótgrónum hugmyndum. Berglind Rós Magnúsdóttir (2002) skoðaði
orðræðu námsbókahöfunda um æxlunarferlið. Í flestum bókum var fjallað um
tvísýna hetjuför sáðfrumunnar til að bjarga egginu frá glötun, nokkurs konar
persónusköpun í anda Grimms-ævintýra. Snemma á 9. áratugnum uppgötvuðu
vísindamenn að þegar sáðfruman snertir eggið er eins og örtotar sem umlykja
yfirborð eggsins framlengist, handsami sáðfrumuna og dragi hana rólega inn.
Í fræðitextum og þar af leiðandi einnig í kennslubókum var áfram þagað um
virkni eggsins en aðeins dregið úr hástemmdri persónugervingu sáðfrumunnar.
Mörkin milli raunveruleika og ævintýris, viðtekinna hugmynda og vísinda eru því
ekki alltaf skýr.
Staðalmyndin um raunvísindamanninn
Þessi mynd er samansafn hugmynda úr fjölmennri
rannsókn meðal 1600 unglinga á 9. áratugnum
þar sem 86% stúlkna og 99% drengja lýstu
raunvísindamanni sem karli. Nemendur höfðu hann
hvítan (99%) og með gleraugu (86%). Þrátt fyrir að
konur séu í meirihluta háskólanemenda eru þær
enn fáar í raunvísindum á borð við eðlisfræði og
stærðfræði. Er líklegt að niðurstaðan yrði svipuð
ef skoðaðar væru hugmyndir um leikskólakennara
eða hjúkrunarfræðinga? Hug­myndin um hugsuðinn
eða snillinginn er oft kynjuð, bæði hvað varðar
viðfangsefni og geranda.
Hvernig eru hugmyndir barna og unglinga
í þínum skóla?
Heimild: Kahle, 1987
1...,47,48,49,50,51,52,53,54,55,56 58,59,60,61,62,63,64,65,66,67,...72