Grunnþættir menntunar
47
kom fram mikilvægi þess að kennarar kynni sér áhugamál allra nemenda sinna og
vinni markvisst með það í kennslunni.
Ef gildi leiðtoga í hópi nemenda eru lík gildum skólans einfaldar það mjög
vinnu kennarans hvað snertir aga og ástundun. Með opnara vali um skóla
verður samkeppni um nemendur með ráðandi menningarauð í farteskinu.
Þetta birtist nokkuð skýrt á framhaldsskólastiginu. Skólar geta jafnvel komist
í þá stöðu að frekar virðist spurt hvað nemendur geti gert fyrir skólann en
hvað skólinn geti gert fyrir nemendur. Frá faglegu sjónarmiði er hins vegar
eftirsóknarverðast að allir skólar
taki við fjölbreyttum hópi nemenda
til að efla nám og auka tækifæri til
jafnréttismenntunar. Skólinn er
í raun eina stofnun samfélagsins
sem getur tryggt öllum uppvaxandi
kynslóðum jöfn tækifæri óháð
félagslegum og menningarlegum
kringumstæðum. Skólastjórnendur
þurfa að íhuga hvernig þeir geti
best uppfyllt markmið um samfélag
og skóla án aðgreiningar þegar þeir
móta reglur um inntöku nemenda
og skipulag innan skólans.
Einelti er flókið félagslegt
fyrirbæri þar sem samspil ýmissa
þátta í umhverfi, innan og utan
skóla, hefur áhrif. Ekki eru allir jafn líklegir til að verða fyrir einelti og þar
getur efnahags-, menningar- og félagsauður skipt máli. Líkur á einelti mótast af
leikreglum á félagslegum vettvangi og samspili þátta sem hafa áhrif á sjálfsmynd
og ríkjandi gildi. Börn og ungmenni sem ekki þykja falla nógu vel að ráðandi
ímyndum eru líklegri en önnur til að vera jaðarsett. Hvaða ímyndir verða ráðandi,
hvaða hæfni og eiginleikar njóta virðingar, fer eftir leikreglum vettvangsins sem
Að skoða tengslanetin
Kennarar sem vilja átta sig betur á
aðgreiningu og blöndun í sínum námshópi
geta gert tengslarit og þróað kennsluhætti
sem ýta undir blöndun og skilning. Tengslarit
er einfalt að búa til. Þau geta falist í því að
skrá hvaða börn leika við hvaða börn, hvaða
börn eru nefnd sem leikfélagar, sem vinir og
þykja eftirsóknarverð. Tengslaritið má skoða í
ljósi af félagslegri stöðu viðkomandi barna og
af því má fá nokkra hugmynd um hverjum er
mismunað og hverjum hampað. Í leikskólum
hérlendis hafa tengslarit stundum verið notuð
til þess að skoða samskipti og eineltistilburði
í barnahópnum.
1...,39,40,41,42,43,44,45,46,47,48 50,51,52,53,54,55,56,57,58,59,...72