Grunnþættir menntunar
41
er að fá börn til þess að brjóta heilann um hvers vegna fullorðnir og börn sjá
oft hlutina frá ólíkum hliðum og hvers vegna hagsmunir þessara hópa fara ekki
alltaf saman. Meira að segja mjög ung börn átta sig á að með auknum aldri eykst
þekking þeirra og skilningur á umheiminum. Sem dæmi má nefna fimm ára barn
sem ræddi við leikskólakennara um teikningu sem það hafði gert af tunglinu
þriggja ára. Barnið útskýrði hvernig það hafði hugsað þá um tunglið á himninum
en bætti við að nú vissi það betur og hefði aðra hugmynd.
Í leikskóla og yngstu bekkjum grunnskóla geta börn og kennarar velt fyrir sér
hvað það merki að vera barn. Hvaða skyldur hafa börn nú og höfðu áður? Hvaða
leiki léku börn hér áður og hvaða leiki leika börn í dag? Hefur eitthvað breyst
og þá hvers vegna? Eru einhverjir þeir leikir sem börn leika í dag þeir sömu og
mamma og pabbi, afi og amma, frænka og frændi léku? Slík verkefni tengja saman
kynslóðir og börn og fullorðnir deila saman
reynslu. Sem dæmi gæti verið skemmtilegt
að taka upp í mynd frásagnir og sögur sem
ömmur og afar, frændur og frænkur hafa
fram að færa og vinna með það í skólum.
Þá er hægt að velta upp spurningum um
hvernig börn og unglingar þau voru og
hvað þeim hafi fundist um eldra fólkið þá.
Hvaða skyldur höfðu þau og hvernig var
komið fram við þau? Hvernig finnst þeim
börn og unglingar í dag vera í samanburði?
Verkefni sem þetta styður líka við sjálfbært
samfélag en ein forsenda þess er að tryggja
lýðræðislega samvinnu kynslóða um eitt
hvað sem skiptir þær máli.
Á sama hátt má fá börn og unglinga til
þess að kanna hvar eldra fólkið heldur sig og hvað það hefur fyrir stafni. Gerið
könnun á fréttum, fréttaskýringarþáttum, blöðum og tímaritum og skoðið hvernig
eldra fólk birtist þar. Í hvaða hlutverkum er það? Hægt er að velta fyrir sér af
hverju eldri borgarar eru ekki meira úti við á strætum og torgum eins og algengt
Stjórnmálaafl
Skiptið nemendum í nokkra hópa og
fáið þeim mismunandi aldursskeið
að rýna. Biðjið vinnuhópana að
skoða hvaða hagsmuni mismunandi
aldurshópar hafa í samfélaginu. Bendið
nemendum á að í hverjum aldurshópi
eru ýmsir undirhópar sem taka þarf
tillit til. Verkefni vinnuhópanna er að
búa til stutta stefnuskrá og slagorð
sem þeir kynna svo fyrir hinum, t.d.
á framboðsfundi. Einnig má nota fleiri
jafnréttisbreytur en aldur.