JAFNRÉTTI
42
er erlendis. Hvers vegna fer lítið fyrir eldra fólki í fjölmiðlum? Hvað getum við
lært af eldri borgurum landsins? Hvað geta börn og unglingar gert með eldri
borgurum?
Leiðsagnarverkefnið Vinátta hefur reynst öflug leið til þess að efla tengsl og
skilning á milli mismunandi aldurshópa. Þar fá háskóla- og skólanemar tækifæri
til að tengjast grunnskólabörnum og vera þeim góð fyrirmynd. Keppt er að
því að skapa persónulegt samband milli barns og ábyrgs, þroskaðs, fullorðins
einstaklings; efla sjálfsmynd barna; gefa þátttakendum tækifæri til að kynnast
börnum, foreldrum þeirra og nánasta umhverfi og bæta þannig þekkingu sína og
reynslu af samskiptum við alls konar fólk. Þetta byggir á þeirri hugmyndafræði
að slík samskipti séu gott innlegg í líf barnsins því að leiðsagnaraðilinn verður
barninu fyrirmynd. Tengslin sem myndast á milli mentors og barns gætu bætt við
möguleika barnsins við mótun sjálfsmyndar og þau áhrif komið fram í auknum
námsáhuga, bættum árangri og meiri lífsleikni. Skólaárið 2010–2011 voru
mentorpörin um 107 talsins (alls 215 einstaklingar) og komu úr háskólum, skólum
og grunnskólum í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Borgarnesi, á
Akureyri og Egilsstöðum.
Samstarf leik- og grunnskóla
Í leik- og grunnskólum fá börn oft að vinna saman þvert á aldur. Í grunnskóla er ekki
óalgengt að fela eldri börnum að verða vinir og verndarar yngri barna. Í samstarfi
leik- og grunnskóla í Kópavogi var ákveðið að taka vináttuverkefnið lengra. Áður höfðu
börnin í 1. og 4. bekk verið pöruð saman að hausti og stundum ekki fyrr en í lok
september. Leikskólinn og grunnskólinn ákváðu að pörunin ætti að eiga sér stað á
meðan yngri börnin væru enn í leikskóla. Börn í þriðja bekk voru pöruð við leikskólabörn.
Þriðjubekkingar skrifuðu leikskólabörnunum bréf sem þau færðu þeim persónulega í
leikskólann. Grunnskólabörnin fengu tækifæri til að heimsækja leikskólann, kynnast
yngri börnunum og jafnvel vinna með þeim að sameiginlegu verkefni. Leikskólabörnin
fóru svo í reglubundnar heimsóknir að hitta „vini“ sína í grunnskólanum.