JAFNRÉTTI
48
ráðast af mörgum þáttum. Þetta samspil
á sér stað á öllum skólastigum og í öllum
skólasamfélögum.
Hafa má í huga að á síðustu árum hafa
foreldrar komið meira en áður að skólastarfi.
Rannsóknir á erlendum vettvangi benda til
að foreldrar sem njóta viðurkenningar fyrir
formlega þekkingu eða stöðu ímenningarlegu
tilliti geti haft forskot á aðra foreldra
þegar kemur að skólavali og samstarfi við
sérfræðinga í skólum.
14
Í mörgum erlendum
rannsóknum hefur verið fjallað um hvernig
tengslanet háskólamenntaðra foreldra nýtist
betur en tengslanet annarra foreldra til að fá
sínu framgengt innan skólakerfisins.
Fagráð um einelti
Fagráð um einelti var sett á fót til
að bregðast við þeim eineltistilfellum
sem ekki tekst að vinna farsællega
úr í skólunum þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir. Mikilvægt er að árétta að
eftir sem áður er það skólasamfélagið
sem fyrst og fremst á að bregðast
við og leysa eineltismál. Fagráðið
vinnur samkvæmt verklagsreglum
sem sjá má á vef Mennta- og
menningarmálaráðuneytis.
Foreldrasamstarf
Jafnrétti
Tenging jafnréttis við foreldrasamstarf.
Er hringt í foreldra til
skiptis ef sækja þarf barn vegna
óvæntra atvika eða ræða um
barnið?
Er brugðist eins við
mismunandi þörfum barna eftir
því hvort kyn á í hlut?
Er tekið
á málum stúlkna
og drengja með sama hætti í
samskiptum við foreldra?
Hvernig er
foreldrahópurinn samsettur?
Skiptir uppruni og
félagsleg staða foreldra máli
í samstarfinu?
Er öllum foreldrum boðið að
eiga samstarf um atriði sem
skipta máli fyrir barnið og fyrir
leikskólann?
Eru bæði mæður og feður boðin
velkomin í aðlögun og ávörpuð í bréfum?
Er hugað að foreldrum sem tala annað
tungumál og/eða hafa annan
menningarlegan bakgrunn?
Hvernig er tekist á við mál
barna sem hafa annan
menningarlegan bakgrunn?
Eru bæði karlar og konur í
stjórn foreldrafélags og
foreldraráðs/skólaráðs?
Er leitast við að virkja
foreldra til samstarfs og gæta
þess að ólíkir félagslegir hópar eigi
jafnan aðgang að
samstarfinu?