JAFNRÉTTI
46
þarf að hafa þetta í huga og leitast við að draga úr kostnaði og dreifa honum eins
og mögulegt er.
Menningar- og félagsauður
Bent hefur verið á að fjárhagur og efnahagsleg völd eru einungis einn þáttur
stéttaskiptingar og að svokallað menningarlegt og félagslegt auðmagn leikur ekki
síður mikilvægt hlutverk í þessu sambandi.
13
Frá blautu barnsbeini njótum við
einhvers konar menningar, í fjölskyldu og samfélagi. Þessir menningarstraumar
birtast okkur sem þekking og leikni sem einstaklingur öðlast með tímanum,
þjálfar með sér og temur sér frá blautu barnsbeini. Þessi auður verður honum
svo eiginlegur að erfitt reynist að greina á milli meðfæddra eiginleika og
áunninna. Þekkingin birtist í öllum háttum, tungutaki, hugarfari og væntingum
til lífsins. Sá sem hefur notið menningar sem byggir á sams konar gildum og
skólinn hefur í hávegum fær forskot á aðra í hópnum. Formleg viðurkenning
á ríkjandi menningarauði birtist í réttindum og háskólagráðum eða hlutdeild í
menningarverðmætum.
Félagsauður vísar til tengslaneta og ekki síður þess hversu auðugir einstaklingar
eru af því sem talið er virðingarvert og eftirsóknarvert. Ákveðin þekking eða hæfni
verður ekki auðmagn nema hún skapi aðgreiningu eða upphefð í samfélaginu.
Í rannsókn Berglindar Rósar Magnúsdóttur (2006) á leiðtogum í unglingadeild
kom í ljós að einkunnir nýttust kvenleiðtoganum til framdráttar. Fyrir þá virðingu
sem strákar nutu virtust þær skipta minna máli. Að vera víðlesinn, hrókur alls
fagnaðar, virkur og fyndinn í kennslustundum var það sem einkenndi þann strák
sem mesta virðingu fékk innan hópsins. Stelpur sem þóttu virkar og áberandi
voru umdeildari og það nýttist þeim ekki að sama marki til vinsælda. Rannsókn
Þórdísar Þórðardóttur (2012) meðal leikskólabarna sýndi að menningarleg
áhugaefni drengja nutu meiri virðingar hjá báðum kynjum. Eins kom fram að
þekking sem nýtur viðurkenningar og aðgengi að henni hefur áhrif á stöðu barna
í barnahópnum. Kennarar þurfa að vera vakandi fyrir leiðum til að víkka út ramma
kvenleika og karlmennsku að þessu leyti, efla virðingu fyrir og tryggja aðgang að
margs konar menningu. Í viðtalsrannsókn Ingólfs Ásgeirs Jóhannessonar (2004)
1...,38,39,40,41,42,43,44,45,46,47 49,50,51,52,53,54,55,56,57,58,...72