JAFNRÉTTI
40
Eftir því sem þjóðfélagið verður flóknara, hefur aðgreining eftir aldri aukist. Í
skólumer börnum iðulega raðað saman eftir aldri og íbúðahverfi eru gjarnan byggð
fólki á svipuðum aldri. Ekki er lengur sjálfsagt að ólíkir aldurshópar umgangist
hverjir aðra eins og áður var. Samvera barna á ólíkum aldri er forsenda þess að
þekking færist frá þeim eldri til hinna yngri. Þannig lærast leikir og menning barna
milli aldurshópa. Í skólastarfi þarf að gæta þess að börn og unglingar á mismunandi
aldri vinni saman í námi og leik. Það er líklegt til að draga úr togstreitu milli yngri
og eldri barna um leið og það vinnur gegn óæskilegum áhrifum aldursmunar.
Þannig má stuðla að jafnrétti þrátt fyrir aldursmun. Aldursblandaðir bekkir eða
samvinna milli árganga eru leiðir sem reynst hafa vel í grunnskólum.
Börn átta sig fljótlega á að skilningur, réttindi og skyldur þeirra eru tengd þroska.
Hægt er að ræða um skyldur og réttindi tengd aldri, breytingar á þeim og stöðu
fólks eftir aldri á mismunandi skeiðum sögunnar. Börnin ræða saman í hópum
eða fara með verkefni heim til að ræða við foreldra, ömmur og afa eða aðra í
nærsamfélaginu um hvað það merkir að verða fullorðinn og hvaða skyldur og
réttindi fylgja fullorðinsárum, hvað það feli í sér að vinna, eiga fjölskyldu, keyra
bíl, sjá um börn og hvernig allt þetta er hluti af því að verða fullorðinn. Hægt
Fjölgreindaleikar eru skemmtileg nýjung í skólastarfi. Skólastarfið er brotið upp í tvo daga
og efnt til keppni í fjölmörgum keppnisgreinum sem reyna á ólíkar greindir. Þá er öllum
börnum skólans skipt upp í tíu manna hópa og að jafnaði er eitt barn úr hverjum árgangi
í hverjum hóp. Tvö elstu börnin eru liðsstjórar og þeirra hlutverk er að stýra hópnum
og sjá um þau börn sem í honum eru báða dagana. Keppnisgreinar eru jafnmargar
hópunum og hóparnir færa sig milli stöðva eftir ákveðnu kerfi. Hópstjórarnir passa upp
á að yngri börnin séu virkir þátttakendur í leikunum, muni eftir hlutunum sínum og hjálpa
þeim í úlpur og skó þegar þarf. Hópurinn fer saman í mat og hópstjórarnir passa upp
á að allir borði vel. Öll börn kynnast krökkum úr öðrum árgöngum og vinna að ýmsum
verkefnum með þeim. Tengsl og kunningsskapur myndast milli yngri og eldri barna
sem oft endist lengi. Þetta skapar virðingu milli barna á ólíkum aldri og stuðlar að góðu
andrúmslofti í skólanum.
1...,32,33,34,35,36,37,38,39,40,41 43,44,45,46,47,48,49,50,51,52,...72