Grunnþættir menntunar
33
Fötlun
Umfjöllun um fötlun þarf að byggjast á virðingu fyrir mannlegum margbreytileika
og mannlegu eðli. Fötlun er afstæð og eðlilegur hluti af lífinu. Allir hafa sínar
veiku og sterku hliðar. Vinna þarf gegn hugmyndum um að fötlun setji fólk til
hliðar eða verði til þess að fólk skeri sig svo mjög úr hópnum. Í einhverjum
skilningi búum við öll yfir miklum hæfileikum og við takmarkaða getu. Brýnt
er að efla þá sýn að hvers konar fötlun sé eðlilegur þáttur í fjölbreytilegri flóru
mannlífsins.
Aðeins um 2% öryrkja teljast fatlaðir frá fæðingu, 98% öryrkja hafa orðið
fyrir hrörnun, sjúkdómi, slysi eða áfalli síðar á lífsleiðinni og geta af þeim sökum
ekki beitt sér til fulls. Fötlun getur verið með ýmsu móti, orðið hlutskipti allra og
falist í andlegri fötlun, geðfötlun, hreyfihömlun, sjón- eða heyrnarskerðingu svo
að eitthvað sé nefnt. Þýðingarmikið er að draga úr ýmsum hindrunum í umhverfi
okkar til að auðvelda öllum þátttöku í atvinnulífi og samfélagi, menningu og
félagslífi, eins og kostur er á. Fötlun er hluti af lífinu og umfjöllun um fötlun ætti
umfram allt að snúast um margbreytileika og styrk.
4
Hvernig er aðgengi að skólanum háttað?
Hjálpleg og fljótleg æfing í nærumhverfi nemenda getur snúist um að athuga
aðgengi líkamlega fatlaðra nemenda í skólanum. Skoða má:
Hvort inngangar ætlaðir fólki í hjólastól séu gefnir skýrt til kynna, hvort
skábrautir séu með þeim halla að fólk í hjólastól komist leiðar sinnar.
Hvort nægilegt rými sé á salernum og hvort stuðningshandföng séu
þannig að fólk sem á þeim þarf að halda geti fært sig í og úr hjólastól.
Hvort dyragættir séu nægilega breiðar fyrir fólk í hjólastól og hvort komast
megi í lyftum á milli hæða.
Hvort stæði fyrir bíla fatlaðra séu í hæfilegri fjarlægð frá aðgengilegum
inngangi.
1...,25,26,27,28,29,30,31,32,33,34 36,37,38,39,40,41,42,43,44,45,...72