Grunnþættir menntunar
23
Kynferðislegt ofbeldi er talin ein mesta ógn sem steðjar að lífi og heilsu barna
á Íslandi og þá einkum stúlkna. Í skýrslu Innanríkisráðuneytisins
7
um einkenni
og meðferð nauðgunarmála á tveggja ára tímabili (2008–2009) kemur fram að
af 189 tilkynningum sem bárust til lögreglunnar voru einungis gefnar út kærur
í 31 tilfelli. Eitt helsta einkenni þeirra mála var að brotaþolar voru ungar konur
og 40% voru stúlkur undir 18 ára sem eru börn að lögum. Gerendur voru í
öllum tilfellum nema einu karlar og stærstur hluti þeirra var á aldrinum 18–29 ára.
Gefur þessi aldursmunur milli brotaþola og gerenda til kynna að mörg málanna
einkennist af þó nokkrum þroska- og aðstöðumun en í tæplega 40% tilvika er
gerandi kunningi eða vinur brotaþola.
Í íslenskri rannsókn
8
sem fram fór í skólum sögðust 13,6% stúlkna og 2,8%
drengja hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur. Stúlkur sem
sögðust hafa verið leiddar, þvingaðar eða neyddar til kynferðislegra athafna
gegn vilja sínum voru rúmlega fimmfalt fleiri en drengir. Ýmislegt bendir til þess
að karlar séu síður líklegir til að greina frá ofbeldi sem þeir verða fyrir og að
Þegar barn segir frá ofbeldi
Það er aldrei auðvelt fyrir barn að greina frá kynferðisofbeldi eða öðru ofbeldi.
Oft hefur barnið þurft að telja í sig kjark í langan tíma og stundum segir barnið
frá slíku án þess að ætla sér það. Ef barn tekur það skref að segja frá slíkri
reynslu er mikilvægt að bregðast rétt við.
Trúðu barninu
Tilkynntu málið til barnaverndarnefndar
Láttu barnið vita að það var rétt að segja frá
Fullvissaðu barnið um að ofbeldið sé ekki því að kenna
Hlustaðu á barnið en ekki yfirheyra það
Tryggðu öryggi barnsins
Mundu að þín viðbrögð skipta máli fyrir horfur barnsins og hvernig
það tekst á við afleiðingar ofbeldisins.
Af vef Barnahúss
1...,15,16,17,18,19,20,21,22,23,24 26,27,28,29,30,31,32,33,34,35,...72