JAFNRÉTTI
18
eigi að ráða meira í sambúð konu og karls svara tæp 40% að það eigi karlinn að
gera en rúm 7% stúlkna eru á þeirri skoðun. Þrátt fyrir þetta er mikill meirihluti
beggja kynja þeirrar skoðunar að jafnrétti eigi að ríkja á milli kynjanna eða 96%
stúlkna og 88% pilta. Þetta mikla misræmi í viðhorfum skýtur skökku við og er
umhugsunarefni fyrir uppalendur.
Þrátt fyrir að margt hafi breyst í átt
til frekara jafnréttis kynjanna eru gamlar
hugmyndir um hlutdeild og hlutverk þeirra
býsna lífsseigar. Brýnt er að vinna með
þessi viðhorf og vekja börn og unglinga
til umhugsunar um þá heimsmynd og
lífssýn sem birtist í hugmyndum um
hefðbundin kynhlutverk. Æskilegt er að
sögu kvenfrelsis- og jafnréttisbaráttunnar
sé sinnt á eldri stigum í skólakerfinu, gera
þarf sögu beggja kynja jafn hátt undir
höfði og meta til jafns kvenlæg og karllæg
viðfangsefni og sjónarhorn. Veita þarf
unglingum innsýn í ýmiss konar kynjamun sem lýtur að menntun, námsvali,
stöðu á heimilinu, vinnumarkaði, lífsstíl, neyslumynstri, umfjöllun í fjölmiðlum,
launum og aðgengi að áhrifastöðum. Á vef Hagstofunnar, vef Jafnréttisstofu og
vef Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna er hægt að nálgast gögn um stöðu
kvenna og karla.
Jafnréttisvika
Í Menntaskólanum í Kópavogi er ein
vika á ári helguð jafnrétti. Þá kemur
jafnrétti kynjanna við sögu með einum
eða öðrum hætti í mestallri kennslu.
Auk kennslunnar skipuleggur starfsfólk
í samstarfi við nemendur dagskrá með
allskyns viðburðum í skólanum þar
sem fjallað er um jafnrétti kynjanna frá
ýmsum sjónarhornum.
Verkefni um kynhlutverk
Börn og unglingar þurfa að læra að greina orðræðu um kynhlutverk og lesa í duldar
merkingar. Koma ljósar og duldar hugmyndir um kynhlutverk fram í efni fyrir börn?
Hvaða mynd er dregin upp af stelpum og strákum, konum og körlum í tölvuleikjum,
auglýsingum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum? Hvernig er fjallað um kynin í netmiðlum?
Hvernig eru íþróttafréttir annars vegar af stelpum og hins vegar af strákum? Byggist
umfjöllunin á fordómum og staðalmyndum?
1...,10,11,12,13,14,15,16,17,18,19 21,22,23,24,25,26,27,28,29,30,...72