JAFNRÉTTI
24
mati Alþjóða heilbrigðismálastofnunar kann tíðni ofbeldis gegn körlum að vera
vanmetin. Allt að 70% þeirra sem leita til Stígamóta til að vinna úr afleiðingum
kynferðislegs ofbeldis greina frá því að ofbeldið hafi átt sér stað fyrir 18 ára aldur.
Ef stuðst er við tölfræði Evrópuráðsins má gera ráð fyrir að í 25 barna bekk
séu að meðaltali fimm börn sem hafa orðið eða verða einhvern tíma fyrir 19 ára
aldur fyrir kynferðislegu ofbeldi. Verkefnisstjórn um verkefnið Vitundarvakning
um kynferðisofbeldi gagnvart börnum
9
hefur staðið fyrir fræðslu fyrir yngstu
börnin með brúðuleikhússýningunni
Krakkarnir í hverfinu
. Sýningin byggir á
erlendu kennsluefni sem hefur verið þýtt og staðfært. Öll átta ára börn í landinu
eru heimsótt í sinn skóla með það fyrir augum að auðvelda þeim að segja frá
kynferðislegu ofbeldi sem þau verða fyrir. Boðskapur sýningarinnar er: Þú færð
hjálp ef þú segir frá. Á vegum verkefnisins hefur einnig verið sent póstkort með
ákalli til allra Íslendinga um að bregðast við ef grunur vaknar um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum.
Í nýsamþykktum breytingum á 30. grein grunnskólalaga (sjá þskj. 1290–747.
mál) er gert ráð fyrir að grunnskólar „hafi heildstæða stefnu um það hvernig
fyrirbyggja eigi að líkamlegt, andlegt eða félagslegt ofbeldi eigi sér stað í
skólastarfi“. Þar kemur einnig fram að „allir grunnskólar skuli fylgja heildstæðri
stefnu til að fyrirbyggja ofbeldi af öllu tagi, hvort sem um er að ræða líkamlegt,
andlegt, kynferðislegt eða félagslegt ofbeldi“. Skólar skulu einnig, samkvæmt
barnaverndarlögum (80/2002), hafa áætlun um framkvæmd tilkynningaskyldu
þar sem því er lýst „hvernig brugðist er við tilvikum um einelti, annað ofbeldi og
félagslega einangrun“. Barátta gegn ofbeldi er nátengd baráttu fyrir jöfnuði, virku
lýðræði og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífsins.
Dagsetningar
8. mars – Alþjóðlegi kvennadagurinn
19. júní 1915 – Kosningaréttur kvenna á Íslandi
27. júní – Alþjóðlegur baráttudagur samkynhneigðra
7. ágúst – Alþjóða réttindadagur transfólks
11. október – Alþjóðadagur stúlkubarna
24. október 1975 – Kvennafrídagurinn
25. nóvember – Alþjóðadagur gegn ofbeldi á konum
1...,16,17,18,19,20,21,22,23,24,25 27,28,29,30,31,32,33,34,35,36,...72