Grunnþættir menntunar
21
sess í baráttu fyrir hinsegin fólk og þá einkum transfólk og aðra sem falla utan
hefðbundinna skilgreininga á kynferði.
Kynbundið ofbeldi
Skortur á jafnvægi, virðingu, lýðræði, jafnrétti og félagslegu réttlæti er undirrót
ofbeldis í samfélögum. Vald er háð tengslum sem eiga sér sögulegar forsendur.
Það sem fyrr á öldum var talið eðlilegt kann að þykja ómannúðlegt í dag. Þannig
eru skilgreiningar á ofbeldi háðar samþykki hvers samfélags á hverjum tíma.
Kynbundið ofbeldi á sér sögulegar rætur og er birtingarmynd á undirskipun
þess kvenlæga í samfélaginu. Ofbeldi er aðallega framið af körlum og samkvæmt
upplýsingum frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu eru 95% allra gerenda
í kynferðisbrotamálum karlkyns.
Kynbundið ofbeldi
er ofbeldi á grundvelli kynferðis og leiðir til, eða gæti leitt
til, líkamlegs, kynferðislegs eða sálræns skaða eða þjáninga þolenda. Hótanir
um ofbeldi af þessu tagi, þvingun eða svipting frelsis á grundvelli kynferðis,
bæði í einkalífi og á opinberum vettvangi, telst einnig til kynbundins ofbeldis.
Undir kynbundið ofbeldi flokkast nauðganir, mansal, vændi, ofbeldi í nánum
samböndum, kynferðisleg áreitni og klám.
Á þeim árum sem ungt fólk er að stíga sín fyrstu skref í nánum samböndum er
ekki sjálfgefið að það átti sig á hvað sé „eðlileg“ hegðun. Samkvæmt áðurnefndri
norrænni könnun frá árinu 2010 horfir ríflega helmingur 16 til 19 ára íslenskra
drengja á klámefni á netinu vikulega eða oftar sem er það mesta meðal drengja á
Norðurlöndum. Mjög auðvelt er fyrir börn og unglinga að nálgast klám og aldrei
hefur það verið jafn aðgengilegt og nú. Klámefni dregur upp skakka mynd af
samskiptum kynjanna og felur gjarnan í sér einhvers konar ofbeldi. Áhrif kláms
á unglinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í nánum samböndum geta verið mjög
neikvæð og vakið óraunhæfar og stundum ofbeldisfullar hugmyndir um kynlíf.
Í þessu samhengi er ljóst að þörf er á fræðslu og umræðu í öllum skólum um
samskipti kynjanna, náin sambönd, kynlíf, virðingu og klám. Tryggja verður að
þessum þætti sé sinnt.