Grunnþættir menntunar
19
Kvenleiki eða karlmennska
Kvenleiki
og
karlmennska
eru hugtök notuð yfir staðalmyndir af konum og körlum.
Þessi hugtök geta verið gagnleg þegar leitast er við að greina hvernig ríkjandi
hugmyndir stjórna hugsun okkar og gjörðum. Bæði hafa þau verið túlkuð á
margvíslegan hátt og tengd jákvæðum
og neikvæðum þáttum. Það sem einum
þykir dæmigert fyrir konur þykir öðrum
einkenna karla og oftast litast afstaðan
af því í hvaða ljósi kynin eru skoðuð.
Af jákvæðum þáttum má nefna vilja til
samvinnu eða samkeppni, sköpunargáfu,
hæfileika til að tjá sig, mýkt og umhyggju,
aga, rökvísi, hlutlægni, kapp, baráttuþrek
og hugrekki. Neikvæðir þættir gætu verið
veiklyndi, undirgefni, áhrifaleysi, skortur á
skynsemi eða rökvísi, áhættuhegðun, harka,
óbilgirni, grimmd og yfirlæti.
5
Miklu skiptir
að átta sig á að hugmyndir um kvenleika
og karlmennsku taka breytingum, þær þarf
alltaf að skoða með hliðsjón af samhengi,
afstöðu þeirra sem um fjalla, sögu og
menningu.
Kynhneigð og kynvitund
Lagaleg staða samkynhneigðra er betri á Íslandi en víða annars staðar og
umburðarlyndi almennings meira. Engu að síður benda rannsóknir til vanlíðunar
samkynhneigðra unglinga. Í nýlegri íslenskri könnun Sigrúnar Sveinbjörnsdóttur,
Þórodds Bjarnasonar, Ársæls M. Arnarssonar og Andreu Hjálmsdóttur (2010)
kom fram að samkynhneigðum nemendum í 10. bekk líður að jafnaði mun verr í
skólanum en öðrumunglingum. Í rannsókn Jóns Ingvars Kjaran og Ingólfs Ásgeirs
Jóhannessonar (2010) kemur fram að samkynhneigðum skólanemendum leið hvað
Verkefni um kvenleika
og karlmennsku
Einn sterkasti mótunaraðilinn á
unglingsárum eru fjölmiðlar. Fáið
nemendur til þess að skoða í
hverju það felst að vera „alvöru
kona“ og „alvöru karl“ samkvæmt
uppáhaldssjónvarpsþáttum
þeirra.
Sjónvarpsauglýsingar eru líka góður
efniviður í umræðu um karlmennsku
og kvenleika í fjölmiðlum. Umræða
um hlut kynjanna í skólabókum kemur
svo upp á yfirborðið endrum og eins.
Fáið nemendur með ykkur í lið og
skoðið birtingarmyndir kvenleika og
karlmennsku í skólabókum og öðru
námsefni á ykkar skólastigi.