9
Grunnþættir menntunar
sem í hlut eiga fatlaðir eða aðrir hópar og einstaklingar. Í skóla án aðgreiningar er
margbreytileika tekið fagnandi og einsleitni hafnað. Skóli án aðgreiningar tekur
sérstaklega til allra þeirra hópa sem á einhvern hátt geta átt undir högg að sækja
eða átt á hættu að fá ekki fulla hlutdeild í skólalífinu. Má þar nefna þá sem ekki
búa yfir íslenskukunnáttu, þá sem búa við fötlun, ýmsa hópa sem búa við bág
Jafnréttishugtakið þróast í tímans rás og á sér ýmsar hliðar. Hér að neðan er þróun
hugtaksins lýst með áherslu á kynjajafnrétti.
Jafn réttur og bann við mismunun
(e.
equality of opportunities
): Áhersla lögð á að
með alla sé farið eins óháð kynferði, uppruna o.s.frv. Með jöfnum rétti er unnið gegn
lagalegri mismunun en ekki fengist við óbeina mismunun. Dæmi um jafnan rétt eru lög
sem kváðu á um sömu námskrá fyrir drengi og stúlkur og lögðu af smíðar fyrir drengi
og handavinnu fyrir stúlkur.
Sértækar aðgerðir
(e.
positive or affirmative action
) tóku að mótast upp úr 1970.
Ekki var talið nóg að afnema lagalegar hindranir heldur þótti mikilvægt að vinna upp halla
fortíðar með tímabundnum aðgerðum. Kvennalistinn var afsprengi þessara hugmynda í
íslenskum stjórnmálum, sem og fléttulistar þar sem gerð er krafa um jöfn hlutföll kynja
á framboðslistum. Annað dæmi um sértæka aðgerð er átak Háskóla Íslands árið 2000
til að fjölga körlum í hjúkrunarfræði og konum í verkfræði.
Samþætting
(e.
mainstreaming
): Hugmyndin er ung og kemur frá Evrópuráðinu.
Kynja- og jafnréttissjónarmiðum skal þá fléttað inn í alla stefnumótum á öllum stigum
og af öllum aðilum. Dæmi um slíka jafnréttisaðgerð er verkefnið kynjuð hagstjórn í
fjármálaráðuneytinu frá árinu 2009. Kynjuð hagstjórn felst í að skoða allar áætlanir
sem varða úthlutun og dreifingu fjármuna í ljósi af jafnrétti kynjanna. Annað dæmi er
grunnþátturinn jafnrétti í aðalnámskrá (2011).
Jafnræði
(e.
equity
) er hugtak sem segja má að nái yfir öll eldri hugtökin. Í þessu riti
eru hugtökin jafnræði og jafnrétti lögð að jöfnu. Jafnræðishugtakið hefur verið áberandi
í menntaumræðunni þegar rætt er um mun á námsárangri hópa (e. achievement
gap), brottfall og fleiri þætti sem unnt er að mæla. Mikilvægt er þó að hafa í huga að
jafnræðishugtakið nær til allra þátta skólastarfsins.
1...,2,3,4,5,6,7,8,9,10 12,13,14,15,16,17,18,19,20,21,...72