JAFNRÉTTI
4
formáli
Í almennum hluta aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og skóla 2011 er í fyrsta
sinn gerð grein fyrir sex grunnþáttum í íslenskri menntun. Þeir eru
læsi
,
sjálfbærni
,
heilbrigði og velferð
,
lýðræði og mannréttindi
,
jafnrétti
og
sköpun
. Grunnþættirnir ná til
starfshátta, inntaks og námsumhverfis og eiga að stuðla að samfellu í skólakerfinu.
Allir eiga þeir sér stoð í löggjöf fyrir leikskóla, grunnskóla og skóla, hver með
sínum hætti, og skulu allir speglast í daglegum verkum nemenda og kennara. Með
nýrri aðalnámskrá er dregið fram hve mikilvægu hlutverki þessir þættir gegna í
skólastarfi.
Til að auðvelda kennurum og skólastjórnendum og starfsfólki skóla að átta sig
á inntaki grunnþáttanna og flétta þá inn í skólastarf var ákveðið að gefa út rit um
hvern þátt. Þar er leitast við að varpa ljósi á grunnþættina og vekja til umhugsunar
um tækifæri tengd þeim í starfi skóla. Höfundar ritanna hafa farið ólíkar leiðir við
verk sín og nálgast efnið frá ýmsum sjónarhornum en miða allir að sama marki;
að ritin verði kennurum og öðru skólafólki til umhugsunar og hvatningar og ekki
síst til leiðbeiningar í daglegu starfi skólans.
Ábyrgð og frumkvæði við innleiðingu grunnþáttanna hvílir á herðum skóla-
stjórnenda í samvinnu við kennara og annað starfsfólk skóla. Þeir gegna forystu-
hlutverki í samvinnu við sitt fólk við að tryggja að grunnþættirnir endurspeglist í
stefnu skólans og starfsháttum. Skapa þarf vettvang fyrir kennara og aðra starfs-
menn til að skipuleggja hvernig grunnþáttunum verði best fyrir komið í daglegu
starfi. Dæmi um leiðir eru
•
leshringir, hópvinna og umræður
•
kaffihúsafundir
•
umfjöllun um einstaka kafla
•
SVÓT-greining
•
áætlanagerð
•
sjálfsmat
og fleira til að meta samskipti og skólabrag út frá grunnþáttunum, greina stöðu
mála, leggja upp kosti, þróa skólanámskrá og flétta þættina inn í daglegt skólastarf.