JAFNRÉTTI
6
Jafnrétti – Einn af
grunnþáttum menntunar
Jafnrétti og mannréttindi eru samofin. Hvorugt getur án hins verið. Jafnrétti
snertir allt skólastarf, um það þarf að fjalla í skólum, bæði oft og víða, og það á
að vera hluti af andrúmslofti og menningu hvers skóla.
Jafnréttismenntun á að fela í sér „gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum
í samfélaginu og stofnunum þess í því augnamiði að kenna börnum og unglingum
að greina aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra“
(
Aðalnámskrá grunnskóla: Almennur hluti,
2011: 20). Markmið jafnréttismenntunar
er jafnframt að veita öllum tækifæri til að þroskast á eigin forsendum, rækta
hæfileika sína, lifa ábyrgu og skapandi lífi í frjálsu og víðsýnu samfélagi í anda
skilnings, umburðarlyndis og jafnræðis. Stefnt er að því að allir hafi hlutverki
að gegna í skólastarfi, allir taki þátt í að byggja þar lýðræðissamfélag þar sem
jafnréttis, sanngirni og réttlætis er gætt í hvívetna og að öllum líði vel í skólanum.
Jafnréttismenntun er ein undirstaða
lýðræðis og mannréttinda
í skólum landsins.
Gengið er út frá því meginviðhorfi að
allir
geti tekið þátt í samfélaginu. Jafnrétti
og lýðræði eru hvort tveggja forsenda þess að samfélag geti verið sjálfbært enda
byggir
sjálfbærni
á samvinnu og þátttöku allra. Í jafnréttissamfélagi fá allir tækifæri
til
sköpunar
, stuðlað er að almennu læsi í sem víðustum skilningi og leitast við
að tryggja
heilbrigði og velferð
allra einstaklinga og þjóðfélagshópa. Grunnþættir
menntunar tvinnast saman á marga vegu og þegar grannt er skoðað verður ljóst
að jafnrétti tengist öllum hliðum mannlegs lífs. Því verða seint gerð tæmandi skil.
Þetta rit á að vera brunnur hugmynda fyrir starfsfólk á öllum skólastigum og í
því er fjallað um jafnrétti í skólastarfi frá mörgum hliðum. Einnig er vísað á efni
sem getur gagnast kennurum og öðrum áhugasömum um jafnrétti í skóla og bent
á leiðir til að beita jafnréttisjónarhorni í námi og kennslu. Fjallað er um nokkra
þætti tengda jafnrétti og þeirri umfjöllun skipt í fimm hluta. Þannig reynum
við að gera ólíkum þáttum mismununar sjálfstæð skil án þess að missa sjónar á
meginviðfangsefninu jafnrétti.