Ritröð um grunnþætti menntunar
jafnrétti – Grunnþáttur menntunar á öllum skólastigum
© 2013 Kristín Dýrfjörð, Þórður Kristinsson og Berglind Rós Magnúsdóttir
Kápuhönnun: Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Umbrot og textavinnsla: Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Námsgagnastofnun
Ritnefnd: Berglind Rós Magnúsdóttir, Hafsteinn Karlsson, Torfi Hjartarson
Tengiliður við Mennta- og menningarmálaráðuneytið: Sesselja Snævarr
Ritstjórn: Aldís Yngvadóttir, Sylvía Guðmundsdóttir
2013 Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Námsgagnastofnun
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja – umhverfisvottuð prentsmiðja
ISBN 978-9979-0-1626-7
Jafnrétti er hugtak sem nær til margra þátta eins og aldurs, búsetu,
fötlunar, kyns, kynhneigðar, litarháttar, lífsskoðana, menningar,
stéttar, trúarbragða, tungumáls, ætternis og þjóðernis. Markmið
jafnréttismenntunar er að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast
á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu
samfélagi í anda umburðarlyndis og jafnréttis. Jafnréttismenntun
felur meðal annars í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum
í samfélaginu og stofnunum þess í því augnamiði að kenna börnum
og ungmennum að greina kringumstæður og fordóma sem geta leitt
til mismununar og forréttinda. Í skólastarfi þurfa allir að eiga hlut að
málum og taka höndum saman um að skapa samfélag jafnréttis og
réttlætis. Leggja ber áherslu á að bæði stúlkur og drengir eigi sem
jafnasta og víðtækasta möguleika. Hvergi í skólastarfi, hvorki í inntaki
né starfsháttum, mega vera hindranir í vegi annars hvors kynsins.
1 3,4,5,6,7,8,9,10,11,12,...72