JAFNRÉTTI
8
Hvað er jafnrétti?
Þegar rætt er um jafnrétti í daglegu tali er oft átt við stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla – kynjajafnrétti. Hinsvegar er jafnréttishugtakið víðfeðmara og
nær til mun fleiri þátta. Í aðalnámskrá eru nokkrir þeirra tilteknir en það eru
aldur, búseta, fötlun, kyn, kynhneigð, litarháttur, lífsskoðanir, menning, stétt,
trúarbrögð, tungumál, ætterni og þjóðerni. Hugtakið
jafnrétti
er líka nátengt
hugtökunum
mismunun
og
misrétti
, jafnréttishugtakið gengur gegn mismunun og
gerir ráð fyrir að sambærileg tilvik fái sambærilega meðferð. Ólík tilvik aftur á
móti geta kallað á sérstakan stuðning eða mismunandi meðferð til að jafnréttis sé
gætt. Jafnrétti er grundvallarregla íslenskrar stjórnskipunar og tryggt í 65. grein
stjórnarskrárinnar en þar segir: „
Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda
án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar,
efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“
Ísland hefur einnig samþykkt ýmsa sáttmála sem lúta að mannréttindum, má þar
nefna
Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, Mannréttindasáttmála Evrópu
og
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
. Þessir sáttmálar eiga það sammerkt að tryggja
á öllum réttindi, sem þar er kveðið á um, án nokkurs manngreinarálits. Ísland er
aðili að
Salamanca-yfirlýsingunni
sem var samþykkt á ráðstefnu Menningarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (e.
UNESCO
) 1994 um aðgerðir vegna nemenda með
sérþarfir. Hún felur í sér nýjar hugmyndir sem byggja á þeirri sýn að öll börn og
unglingar eigi rétt á menntun og að skólum beri að taka tillit til mismunandi þarfa
einstaklinga. Ísland er einnig aðili að sáttmála Menningarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna um menntun fyrir öll börn (
Dakar-sáttmálanum
) en hann fjallar um
menntun barna, m.a. með tilliti til aðgengis, gæða menntunar og kynferðis.
Skóli án aðgreiningar – skóli
margbreytileikans
Stefna um
skóla án aðgreiningar
spratt upp sem andsvar við útilokun barna með
fatlanir frá almennu skólakerfi en beinist nú gegn hvers konar útilokun hvort
1