JAFNRÉTTI
12
kynslóðir. Margir kannast við að
hafa sungið um negrastrákana á
unga aldri og sums staðar má enn
sjá textann á vefsíðum leikskóla.
Þegar bókin kom út í endurútgáfu
árið 2007 varð hún metsölubók
vikum saman en nú brá svo við að
margir brugðust ókvæða við anda
bókarinnar og viðhorfi til kynþátta.
Ríkjandi hugmyndafræði hafði tekið
róttækum breytingum frá fyrri tíð.
Bókin
Tíu litlir negrastrákar
kveikti
á þessum tíma heitar umræður og
býður enn upp á gott tækifæri til
að ræða bækur og hugmyndir sem
meiða, hugmyndafræði að baki efni sem þessu og þær spurningar hvar, hvort og
hvernig hún á heima í nútímasamfélagi.
Hugmyndir um kyn
Ríkjandi hugmyndafræði eða þankagangur er oft augljós þegar hugmyndir um
hefðbundin
kynhlutverk
eru annars vegar. Þannig er ekki óalgengt að fólk vísi í eðli
kynjanna og haldi því fram að líffræðilegur munur stýri stöðu fólks eða störfum,
að kynin séu hreinlega sköpuð til að sinna ólíkum hlutverkum. Þarna er ekki
gerður greinarmunur á
líffræðilegu kyni
og
félagslegu kyni
eða
kyngervi
. Líffræðilega
kynið segir ekki endilega til um hvernig fólk hagar sér, drengir eru ólíkir hver
öðrum og stúlkur ólíkar hver annarri. Kynjamynstur eru vissulega sýnileg en þau
eru langt í frá eins einhlít eða skýr og margir ætla.
Finna má mikinn mun á hlutverkum kynjanna eftir menningarsamfélögum
og á örfáum áratugum hafa hugmyndir á Vesturlöndum um hvernig kynin eigi að
haga sér tekið miklum breytingum. Hlutir og tákn sem eru eignaðir öðru kyninu
geta færst yfir á hitt kynið á tiltölulega skömmum tíma. Við upphaf tuttugustu
aldar þótti bleikur litur tilvalinn á unga drengi og var í huga margra afbrigði af
Bækur sem vöktu hörð viðbrögð og hægt er
að nota til að ræða við börn og unglinga eru
bleiku og bláu barnabækurnar sem komu út
hjá Setbergi árið 2012,
Bleika bókin mín
og
Bláa bókin mín
. Þar voru dregnar upp sterkar
og í margra augum vítaverðar staðalmyndir af
hlutverkum, möguleikum og draumum stúlkna
og drengja. Stelpur áttu að sinna húsverkum
og halda sig sem næst heimilinu á meðan
strákar áttu að beina athygli að geimferðum
og vísindum. Umræðu um skýr dæmi eins
og þessi má tengja allra handa efni og ótal
dæmum þar sem staðalmyndir eru ekki jafn
ljósar.
1