JAFNRÉTTI
22
Kynferðisleg áreitni
Í samskiptum kynjanna kemur stundum til kynferðislegrar áreitni. Þar er um að
ræða ósanngjarna ogmeiðandi kynferðislega hegðun semhaldið er áframgegn vilja
þess sem fyrir verður þrátt fyrir að gefið sé til kynna að hegðunin sé óvelkomin.
Eitt tilvik getur líka talist kynferðisleg áreitni, ef það er alvarlegt.
6
Áreitnin vegur
að sjálfsvirðingu þeirra sem henni sæta og getur birst í líkamlegri valdbeitingu, svo
sem káfi og þukli, og í niðurlægjandi athugasemdum um getu, útlit og líkamlegan
þroska fólks af báðum kynjum. Hún
birtist líka í klámfengnu tali, móðgunum
af kynferðislegu tagi eða tilboðum,
þrýstingi eða kröfum um kynferðisleg
samskipti í óþökk þess sem fyrir þeim
verður. Þeir sem verða fyrir slíkri reynslu
finna til niðurlægingar og smánar.
Kynferðisleg áreitni er óásættanleg og
hún á ekki að líðast. Starfsfólk skóla
verður að grípa inn í ef vart verður við
hegðun af þessu tagi. Í jafnréttisáætlun
skólans þarf að koma skýrt fram að allir
nemendur og starfsmenn eigi rétt á að
komið sé fram við þá af virðingu og að
kynferðisleg áreitni sé ekki liðin.
Kynferðisofbeldi gagnvart börnum
Ljóst er að kennarar og annað starfsfólk skóla geta verið lykilaðilar þegar bregðast
þarf við kynferðislegu ofbeldi og tryggja velferð og öryggi barna. Mikilvægt er
að bregðast við slíkum málum á traustan og faglegan hátt. Barnahús, sem rekið
er á vegum Barnaverndarstofu, hefur hlotið verðlaun og alþjóðlega athygli fyrir
fagmennsku á þessu sviði.
Greining hugtaka
Nemendum er skipt í hópa og hver hópur
fær einn miða sem á stendur hugtak
eins og t.d. klámvæðing, kynbundið
ofbeldi, launamunur kynjanna, kynskiptur
vinnumarkaður og staðalmyndir kynjanna.
Hópurinn á að kynna sér hugtakið og
svara eftirfarandi spurningum: Hvað er
þetta? Er þetta vandamál? Ef við viljum
breyta þessu hvað getum við gert?
Upplýsingar um þessi hugtök má finna í
Kynungabók
og leiðarvísi með
Fáðu já
en
hann má finna á netinu.
1...,14,15,16,17,18,19,20,21,22,23 25,26,27,28,29,30,31,32,33,34,...72