Grunnþættir menntunar
17
Kynjajafnrétti
Kona
Þegar allt hefur verið sagt
þegar vandamál heimsins eru
vegin metin og útkljáð
þegar augu hafa mæst
og hendur verið þrýstar
í alvöru augnabliksins
— kemur alltaf einhver kona
að taka af borðinu
sópa gólfið og opna gluggana
til að hleypa vindlareyknum út.
Það bregst ekki.
Ingibjörg Haraldsdóttir
Samkvæmt úttekt Alþjóða efnahagsráðsins (e.
World Economic Forum
) frá 2012 er
hvergi í heiminum meira jafnrétti á milli kynja en á Íslandi. Í henni er lagt mat á
jafnrétti kynja í stjórnmálum, menntun, atvinnu og heilbrigðiskerfi. Af því sem
okkur telst til tekna má nefna að hér hafa konur verið forseti og forsætisráðherra,
að hér eru margar konur í langskólanámi og hafa gott aðgengi að námi, að hér
er vel fylgst með konum á meðgöngu, barnadauði fátíður og hátt hlutfall kvenna
á Alþingi og í ráðherrastólum. Jafnréttisbaráttan á Íslandi hefur vissulega skilað
miklu í alþjóðlegum samanburði en samt þarf að gera betur á ýmsum sviðum.
Í nýlegri norrænni skýrslu
4
fyrir Norðurlandaráð, þar sem kannaðir voru
hagir, líðan og lífsstíll norrænna ungmenna á aldrinum 16 til 19 ára, kemur á
óvart hvað viðhorf íslenskra unglinga í jafnréttismálum eru afturhaldssöm. Um
fjórir af hverjum tíu íslenskum piltum á þessum aldri telja að karlar eigi að ganga
framar konum um störf. Nær helmingur íslenskra drengja á þessu aldursbili telur
að konur eigi að vera heima með börnum þegar þau eru ung og 14% drengja eru
fylgjandi því að konur eigi alls ekki að vinna úti. Þegar drengir eru spurðir hvor
2
1...,9,10,11,12,13,14,15,16,17,18 20,21,22,23,24,25,26,27,28,29,...72