JAFNRÉTTI
14
daglegu lífi. Skilgreiningar á hugtakinu
klám
hafa verið breytilegar en hér er stuðst
við þá skilgreiningu að klám sé klúr og særandi framsetning á kynferðislegu efni.
Klám er oft með ofbeldiskenndum undirtónum og konur í hlutverki undirsáta
eða fórnalamba. Áhrif kláms má svo sjá í auglýsingum, kvikmyndum, tísku og
tónlistarmyndböndum svo eitthvað sé nefnt. Smám saman verður klámvæðingin
hluti af ríkjandi hugmyndafræði, hegðun og framsetning sem enduróma klám
verða eðlilegur hluti af fasi kvenna og karla í ýmiss konar samskiptum og samhengi
án þess að margir staldri við það eða veiti því sérstaka eftirtekt.
Tónlistarmyndbandið
All the
Lovers
með Kylie Minogue var notað
sem dæmi um óljós mörk klámmynda
og tónlistarefnis í fræðslumyndinni
Fáðu já
. Tónlistarmyndbandið var
ekki löngu síðar sýnt beint á eftir
barnatíma í Ríkissjónvarpinu og vakti
þá töluverð viðbrögð. Árið 2010
benti Katrín Anna Guðmundsdóttir
á að klámvæðingin hafði gengið svo
langt að börnum á leikskólaaldri var
stillt upp á vafasaman hátt. Þetta mátti
þá sjá í auglýsingum um búninga fyrir
öskudag.
Hugmyndir um menningu
Þjóðhverfa
er ágætt dæmi um sjónarhorn eða hugmyndafræði sem gjarnan verður
ríkjandi. Hún felur í sér að fólk metur aðra menningarheima út frá sinni eigin
menningu og hefur tilhneigingu til að líta svo á að eigin menning sé best eða sú
eina rétta. Stolt yfir eigin uppruna og heimkynnum getur verið gott og gilt en gæta
þarf þess að virða ekki lítils siði og menningu annarra. Lífsvenjur annarra þjóða
kunna að virðast hjákátlegar ef þær eru ekki settar í samhengi við menningu
og siði sem hafa mótast á löngum tíma. Til þess að sporna gegn þjóðhverfu
Klám – nekt – kynlíf. Klám snýst um
sjónarhorn og afstöðu. Mikilvægt er að gera
greinarmun á klámi annars vegar og nekt og
kynlífi hins vegar. Konur eru kynverur ekkert
síður en karlar og taka fullan þátt í kynlífi til
jafns við þá. Brýnt er að leggja áherslu á
það vald sem stelpur og strákar hafa til að
velja og hafna í samskiptum sínum í kynlífi
og þá ábyrgð sem í því felst. Í því sambandi
er bent á nýtt fræðsluefni, t.d. myndina
Fáðu já: Stuttmynd um mörkin milli ofbeldis
og kynlífs
ásamt leiðarvísi fyrir starfsfólk
grunnskóla og fræðsluefni frá Embætti
landlæknis sem ber heitið
Örugg saman
.