Grunnþættir menntunar
31
Dagsetningar
1.–7. febrúar – Alþjóðavika samlyndis trúarbragða
20. febrúar – Alþjóðadagur félagslegs réttlætis
21.–27. mars – Baráttuvika gegn kynþáttafordómum og misrétti
23. mars – Alþjóðadagur til minningar um fórnarlömb þrælahalds
og þrælasölunnar yfir Atlantshafið
8. apríl – Alþjóðadagur Rómafólks
30. apríl – Minningardagur um Helförina (hbr.
Yom ha Shoah
)
20. júní – Alþjóðadagur flóttamanna
23. ágúst – Alþjóðadagur til minningar um þrælasölu og afnáms
hennar (UNESCO)
9. nóvember – Kristalsnæturinnar minnst – Alþjóðadagur gegn
fasisma og gyðingahatri
18. desember – Alþjóðadagur farandverkafólks
Hægt er að nálgast trúarbrögð og lífskoðanir á mismunandi hátt. Í leikskólum og
á yngri stigum grunnskóla er hægt að skoða mismunandi bænahús, velta fyrir
sér hvað gerist þar og hvaða hlutverki þau gegna í samfélaginu. Fræðsla um jól
og aðrar trúarhátíðir eru fastur þáttur í starfi fjölmargra skóla. Að bera saman
þær hátíðir við hátíðir í öðrum trúarbrögðum gæti verið spennandi verkefni.
Hvað er það sem sameinar og hvað er öðruvísi? Í mörgum trúarbrögðum gegna
hefðir tengdar mat og tónlist miklu hlutverki, sjónlistir og ritlist eru líka iðulega
tengdar trúariðkun. Margir telja að með því að banna boðandi kirkjur í skólum sé
líka verið að banna allt það sem tengist sögu og hefðum trúarbragða á borð við
kristni í landinu. Kennarar og t.d. nemendur á eldri stigum gætu skoðað hvort
það sé raunin.
1...,23,24,25,26,27,28,29,30,31,32 34,35,36,37,38,39,40,41,42,43,...72