Grunnþættir menntunar
61
jafnréttismál en samræða og samvinna starfsfólks er einnig mikilvægur hluti af
símenntun.
Mismunandi skólastig kalla á mismunandi áherslur. Á ólíkum skólastigum má
skoða spurningar eins og þessar:
Kaffihúsafundir hafa gefist vel bæði meðal nemenda og starfsmanna. Þetta eru
hugarflugsfundir þar sem þátttakendum er skipt í litla hópa sem sitja saman við borð
og ræða ákveðnar spurningar. Hóparnir eru leystir upp eftir ákveðinn tíma og nýir hópar
myndaðir. Þess er gætt að einn úr hverjum hópi sitji eftir við borðið og í hvern nýjan
hóp komi þátttakendur af ólíkum borðum. Áfram er rætt og þátttakendur greina frá því
sem rætt var á þeirra borðum. Að lokum eru niðurstöður hvers borðs lagðar fram og
aðgerðaáætlun byggð á þeim. Með þessu nást fram margar raddir, mörg sjónarhorn og
þátttakendur hafa með þessu bein áhrif á stefnumótun.
17
Hvers konar vægi fá nemendamenning og nemendalýðræði í jafnréttisáætlun og
annarri stefnumótun skólans?
Er gert ráð fyrir því að nemendur taki þátt í að móta og fylgja eftir jafnréttisáætlun
skólans?
Er þess gætt að andlit skólans út á við séu ekki einsleit út frá t.d. kyni, stöðu og
kynþætti? Í því felst að skoða hvort allir taki almennt þátt í þeim atburðum sem
eru skipulagðir fyrir eða með nemendum.
Hvernig birtist skólinn gestum og gangandi á veggjum eða vefsíðu skólans?
Er fjölbreytileiki sem einkennir skólann sýnilegur?
Eru sértækar aðgerðir til að ýta undir virðingu og samlögun (e.
inclusion
)
nemenda og starfsmanna sem eru af erlendu bergi brotnir eða úr öðrum
minnihlutahópum og er unnið gegn fordómum í þeirra garð?
Hvernig er leikvöllurinn? Endurspeglar hann þarfir mismunandi hópa og aldurs?
Hvernig er aðgengi að tölvum og hugbúnaði?
Er íþrótta- og félagsaðstaða í skólanum notuð af breiðum hópi nemenda?
1...,53,54,55,56,57,58,59,60,61,62 64,65,66,67,68,69,70,71,72