JAFNRÉTTI
60
Andi skólastarfs og umhverfi
Breyting á skólastarfi í átt til jafnréttis felst fyrst og fremst í mótun menningar
og viðhorfa. Skólastjórar gegna þar lykilhlutverki því þeir eru leiðtogar í öllu
breytingar- og þróunarstarfi innan skólans. Þeir þurfa að leita leiða til að styrkja
kennara í vinnu með fjölbreytileika nemendahópsins og jafnrétti í skólastarfi.
Skapa þarf umhverfi samræðu sem stuðlar að þekkingarleit og tryggja að
virðing sé borin fyrir þeirri reynslu sem hver og einn býr yfir, hvort sem um er
að ræða börn, unglinga eða starfsfólk. Valddreifing og vinna í teymum stuðla
að góðum árangri og allir, bæði ungir og aldnir, eiga að njóta sömu virðingar.
Endurmenntun starfsfólks er mikilvægur þáttur í þessu, t.d. fræðslufundir um
Samfélagsgreinar,
trúarbragðafræði,
lífsleikni, siðfræði
Fjölbreytileiki
trúarhugmynda –
nemendur kynna
sér nokkur af helstu
trúarbrögðum og kynna
þau hvert fyrir öðru.
Þar má t.d. skoða
hefðir og trúarhátíðir
og hvernig þær hafa
áhrif á daglegt líf.
Fara í leiki þar sem
félagar verða að
treysta hver á annan.
-Setja á svið atriði úr
mannskynssögunni þar
sem fólk hefur staðið
upp fyrir rétti annars
fólks.
-Skoða hvað er
sameiginlegt í
trúarathöfnum
mismunandi trúflokka.
-Rökræður um tiltekið
álitamál tengt jafnrétti,
innan skólans t.d. eða
í samfélaginu. Einn
hópur er með og annar
á móti.
-Nemendur kynna sér
lífshlaup nokkurra
listamanna. Hvaða
hugmyndaheima eru
þau að skoða með list
sinni? Hvernig hefur
þeim tekist til?
-Samskipti í nánum
samböndum. Tala um
virðingu á milli para.
-Ræða siðferðileg
álitamál sem
tengjast tækni og
læknavísindum,
mannkynbótum,
fósturskimunum
og fleiru. Umræðu
má tengja
mannréttindasáttmála
og réttarhöldum í
Nürnberg.
Stærðfræði
Búa til gröf yfir fjölda
nemenda í skóla/
bekk skipt eftir t.d.
kyni, aldri, þátttöku
í íþróttum eða öðru
tómstundastarfi
o.s.frv. Greina og ræða
niðurstöður.
Nota tölur frá
Hagstofunni um konur
og karla, aldur, búsetu,
innflytjendur og annað
af því tagi til að setja
fram á grafískan og
jafnvel leikrænan hátt,
sbr. fréttaflutning.
Hugmyndir um
karlmennsku og
kvenleika, kynhlutverk
og útlit. Hvað kostar
að vera kvenleg/
karlmannlegur?
Reikna saman allar
snyrtivörurnar,
klæðnaðinn,
klippinguna og annað.
Rýna tölur sem sýna
launamun kynjanna.
Skoða þróun launa hjá
körlum og konum og
reikna fram í tímann
hvenær fullkomnu
launajafnrétti verður
náð miðað við þróun
seinustu áratuga.
Upplýsinga- og
tæknimennt
Búa til teiknimyndasögu
eða leikna mynd um
efni tengt jafnrétti eða
mismunun.
-Athuga vef Listasafns
Íslands sem er
sérstaklega gerður
fyrir skóla út frá
kynjasjónarmiði.
-Fjalla um og prófa
tækni sem opnar
leiðir fyrir fólk með
mismunandi skerðingu.
-Taka upp og birta
viðtal við einstaklinga
sem tilheyra einhverjum
minnihlutahópi.
Nota tækni og
stafræna miðla til að
búa til efni um jafnrétti
á ýmsum sviðum.
-Koma á samstarfi
við elliheimili þar sem
nemendur geta kennt
eldri borgurum á
tæknina.
Pæla í aðgengi að
upplýsingum og ræða
hvernig það hamlar
og styður við lýðræði.
Útbúa hugarkort um
efnið og tengja ýmsum
upplýsingalindum.