SJÁLFBÆRNI
22
á lífverum, plöntum eða fuglum. En geta þeir ekki hlustað á tónlist og jafnvel lært
lög þótt þeir þekki ekki nótur? Og geta þeir ekki farið í leikhús eða bíó þótt þeir
viti ekki hvað leikararnir heita?
Grunnvistkerfi Jarðar er tiltölulega
einfalt og er alls staðar það sama. Það
er eins og leikrit sem hefur verið þýtt
á ótal tungumál og er leikið um allan
heim. Á hverjum stað eru leiktjöldin
ólík en söguþráðurinn er hvarvetna eins.
Aðalleikararnir eru alls staðar þeir sömu;
sól, grænukorn plantna, loft og vatn, en
hinir leikararnir eru ólíkir í útliti eftir
svæðum og löndum, þótt hlutverk þeirra
séu hin sömu. Sólin skín á lyng á Íslandi,
eplatré í Svíþjóð, kaktus í Ástralíu. Alls
staðar hefur hún sömu áhrif. Plöntur
ljóstillífa og vaxa og breyta ólífrænu efni í
lífrænt. Á plöntunum lifa dýr, og alls staðar
eru lífverur sem „leika“ hin ýmsu hlutverk, eru plöntuætur, rándýr eða alætur.
Hvarvetna eru líka lífverur sem taka við úrgangi annarra lífvera og nýta hann
sér til framfæris og breyta honum í hráefni til lífs enn öðrum lífverum. Hvergi
er kyrrstaða, allt er á hreyfingu. Alls staðar er verið að byggja upp og brjóta
niður. Allt sem myndast og verður til tekur lán og greiðir það aftur með því að
leysast upp svo að aðrir hlutir geti orðið til. Hring eftir hring er þetta leikrit leikið
hvar sem er í veröldinni. Og við, allt fólk og öll samfélög, erum hlutar af þessu
vistkerfi, þessu leikriti. Og til þess að taka þátt í því verðum við að skilja það. Ef
við kunnum ekki hlutverk okkar getum við eyðilagt leikritið svo að leikur sem átti
að enda vel endar illa eða með ósköpum.
Lögmál náttúrunnar eru þau sömu um allan heim. Menn ólíkra trúarbragða
hafa oft ólíka sýn á hvað er rétt og rangt. Það skapar úlfúð og togstreitu, jafnvel
ófrið. En lögmál Jarðar eru alls staðar þau sömu, hringrásir sömu efnanna og
flæði orkunnar, sömu leikreglurnar sem þarf að virða. Ef við trúum því að það sé
Námsefni um hringrásir
Námsefnið
Komdu og skoðaðu
hringrásir
undirstrikar þá hugsun að
vistkerfið megi skoða eins og leikrit.
Í bókinni er gert ráð fyrir leiklestri
og í vefefni sem fylgir eru leikir sem
má leika hvar sem er í veröldinni og
útfæra fyrir alla aldurshópa:
•
Lífsvefurinn
•
Fæðupíramídinn
Sjá slóðir í samantekt kennsluverkefna
á bls. 58.