SJÁLFBÆRNI
34
hringrásunum. Hvorki yrði þá sama bruðl og sóun með náttúruverðmæti og nú
er né safnaðist upp hættulegt rusl og mengun. Þetta sér fólk en leiðir til úrbóta
eru umdeildar og erfiðar. Fyrsta skrefið er að fólk geri sér grein fyrir vandanum
og finni hjá sér vilja til að taka til höndunum til lausna.
Æviferill tveggja burðarpoka
Léreftspoki úr lífrænt ræktaðri bómull. Við ræktun hennar eru ekki notuð nein
eiturefni eða aukaefni. Bóndinn sem ræktar bómullina fær greitt sanngjarnt verð
fyrir sína vinnu svo og þeir sem spinna bómullina, vefa efnið og sauma pokann.
Kominn á markað er þessi poki dýr en sá sem kaupir hann getur notað hann
aftur og aftur um langan tíma. Þegar hann er ónýtur hendir eigandinn honum í
lífrænan safnhaug þar sem efni hans falla aftur inn í hringrásir Jarðar.
Plastpoki er unnin úr olíu. Olíu er dælt upp úr jarðlögum í miklu magni. Mest af
henni er brennt til að knýja farartæki Jarðarbúa. Vinnsla og bruni á olíu hefur
í för með sér gífurlega mengun sem er að breyta loftslagi Jarðar með mjög
alvarlegum afleiðingum. Á tiltölulega ódýran hátt má líka umbreyta olíu í plast
sem er hræódýrt efni. Úr plasti eru m.a. búnir til burðarpokar sem eru notaðir
ótæpilega enda ódýrir og jafnvel gefnir. Þegar plastpokum er hent eyðist
plastið ekki heldur brotnar niður í smáar einingar sem safnast upp. Mikið af
plastinu berst til sjávar og á ákveðnum svæðum í höfunum, bæði Kyrrahafi og
Atlantshafi, hafa myndast stórir flekar af plasti sem stækka stöðugt. Á hverju ári
drepst mikill fjöldi sjófugla og sjávarspendýra eftir að hafa étið plast og önnur
dýr flækjast í því og festast og kafna.
21
Ef verðlag á hlutum væri í samræmi við umhverfisáhrif þeirra ætti það að vera
plastpokinn en ekki taupokinn sem væri svo dýr að fólk veigraði sér við að kaupa
hann. En af því að auðlindin er lítils metin og menn geta skaðað Jörðina og
umhverfi alls mannkyns án ábyrgðar þá getur fólk fengið plastpoka ókeypis – ef
það tekur við þeim. Er ekki kominn tími til að hætta því?