5
Grunnþættir menntunar
Stjórnendur skóla þurfa einnig að horfa inn á við og íhuga eigið starf og
stjórnunarhætti með hliðsjón af hugmyndum um grunnþættina, hlutverk náms-
greina eða námssviða, samvinnu starfsmanna, möguleika nemenda, náms- og
kennsluhætti, velferð og líðan, leik og sköpunargleði, skólamenningu, nærsam-
félag skóla og skapandi skólastarf. Sama máli gegnir raunar um alla sem tengjast
skólastarfinu. Mikilvægt er að skoða með opnum huga og gagnrýnum augum
viðhorf okkar og venjur í ljósi grunnþátta menntunar.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Námsgagnastofnun hafa haft sam-
vinnu um útgáfu rita um grunnþætti menntunar. Í þessu riti er fjallað um grunn-
þáttinn læsi. Höfundur er Stefán Jökulsson, lektor við Menntavísindasvið Há-
skóla Íslands.
Ritnefnd