Page 6 - Læsi

LÆSI
4
FORMÁLI
Í almennum hluta aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2011 er
í fyrsta sinn gerð grein fyrir sex grunnþáttum í íslenskri menntun. Þeir eru
læsi
,
sjálfbærni
,
heilbrigði og velferð
,
lýðræði og mannréttindi
,
jafnrétti
og
sköpun
.
Grunnþætt-
irnir ná til starfshátta, inntaks og námsumhverfis og eiga að stuðla að samfellu í
skólakerfinu. Allir eiga þeir sér stoð í löggjöf fyrir leikskóla, grunnskóla og fram-
haldsskóla, hver með sínum hætti, og skulu allir speglast í daglegum verkum
nemenda og kennara. Með nýrri aðalnámskrá er dregið fram hve mikilvægu hlut-
verki þessir þættir gegna í skólastarfi.
Til að auðvelda kennurum og skólastjórnendum og starfsfólki skóla að átta sig
á inntaki grunnþáttanna og flétta þá inn í skólastarf var ákveðið að gefa út rit um
hvern þátt. Þar er leitast við að varpa ljósi á grunnþættina og vekja til umhugsunar
um tækifæri tengd þeim í starfi skóla. Höfundar ritanna hafa farið ólíkar leiðir við
verk sín og nálgast efnið frá ýmsum sjónarhornum en miða allir að sama marki;
að ritin verði kennurum og öðru skólafólki til umhugsunar og hvatningar og ekki
síst til leiðbeiningar í daglegu starfi skólans.
Ábyrgð og frumkvæði við innleiðingu grunnþáttanna hvílir á herðum
skólastjórnenda í samvinnu við kennara og annað starfsfólk skóla. Þeir gegna
forystuhlutverki í samvinnu við sitt fólk við að tryggja að grunnþættirnir endur-
speglist í stefnu skólans og starfsháttum. Skapa þarf vettvang fyrir kennara og
aðra starfsmenn til að skipuleggja hvernig grunnþáttunum verði best fyrir komið
í daglegu starfi. Dæmi um leiðir eru
‡
leshringir, hópvinna og umræður
‡
kaffihúsafundir
‡
umfjöllun um einstaka kafla
‡
SVÓT-greining
‡
áætlanagerð
‡
sjálfsmat
og fleira til að meta samskipti og skólabrag út frá grunnþáttunum, greina stöðu
mála, leggja upp kosti, þróa skólanámskrá og flétta þættina inn í daglegt skólastarf.