Grunnþættir menntunar
55
um gæðaviðmið skóla í menntun til sjálfbærni sem er byggt á reynslu verkefnisins
Skólar á grænni grein
.
Á þessu sviði eru Íslendingar ekki einir í heiminum
39
. Á þeim áratugum sem
liðnir eru síðan þjóðir heims samþykktu þróun til sjálfbærni hafa fjölmargir aðilar
velt fyrir sér hugsanlegu skipulagi og aðferðum sem þeir skólar geta stuðst við
sem vilja hefja og efla menntun til sjálfbærni. Bæði er um að ræða opinbera aðila
og frjáls félagasamtök. Samtökin Foundation for Environmental Education
40
voru stofnuð á níunda áratug síðustu aldar og einbeittu sér í fyrstu að hafinu og
mengun þess. Í kjölfar Ríó-92 efldust samtökin mjög og árið 1994 hófu þau að
þróa verkefnið
Skólar á grænni grein
(Eco-Schools)
41
með stuðningi Evrópuráðsins.
Markmið verkefnisins er að virkja ungt fólk í sínu nánasta umhverfi í viðfangsefnum
að sjálfbærri þróun í anda Ríó-92. Frá því um aldamót hefur Landvernd
42
stýrt
verkefninu hér á landi. Það hefur notið mikilla vinsælda og eru fjölmargir skólar af
öllum skólastigum og víðs vegar um landið skráðir í það.
43
Kostur verkefnisins er
ekki síst sá að það veitir skólum leiðsögn um hvernig þeir geta smátt og smátt fetað
sig inn á slóð sjálfbærni með þátttöku alls skólasamfélagsins á lýðræðislegan hátt.
Jörð úr ægi
Móðir Jörð
Jörðin er móðir alls lífs. Við erum öll af henni fædd. Hún er sjálf uppspretta
mannlífsins og alls þess sem kvikt er. Eigi að síður hefur mannkynið komist
upp með að umgangast hana eins og frekir og tillitslausir smákrakkar, líkt og
dekurbörnum er oft tamt að koma fram við móður sína. Við gerum okkur dælt
við hana, krefjumst alls af henni og ætlumst til að hún fyrirgefi okkur allt án þess
að láta sér bregða. Hún er talin til þess gagnlegust að þjóna og valdafíkn og
græðgi skirrast einskis þegar hún á í hlut.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti
44