SJÁLFBÆRNI
8
sporna við alvarlegum umhverfisvandamálum. Þau sem þá voru helst nefnd voru
eyðing og þynning ósonlagsins, hætta á loftslagsbreytingum, eyðing skóga, myndun
eyðimarka og mengun í lofti, láði og legi. Grunnmarkmið heimsráðstefnunnar
skyldu vera að koma á samvinnu þjóða heims um að tryggja framtíð Jarðar.
Allsherjarþingið setti einnig fram nokkur meginatriði sem hafa skyldi til
grundvallar í umræðum og ályktunum heimsráðstefnunnar:
Fátækt og fólksfjölgun er ein af rótum umhverfisvandans, hann verður
ekki leystur nema með því að taka líka á efnahagsmálum þjóða.
Önnur rót vandans er misskipting gæða, ofnýting auðlinda, lífshættir og
neysluvenjur og því þarf að endurskoða framleiðslu og lifnaðarhætti.
Iðnríkin bera mikla ábyrgð á umhverfisvandanum og því verða þau að
leggja meira af mörkum til lausnar hans en fátækari ríki.
Jörð – jörð
Auður býr á Hóli, mikilli kostajörð. Hún hafði ætlað sér að koma útsæðinu í
jörðina í dag en þegar hún leit út í morgun hafði snjóað og jörð var alhvít. „Ég
hætti nú alveg að trúa á hlýnun Jarðar“, tautaði hún fyrir munni sér.
Hefð var fyrir því í íslensku að skrifa orðið jörð með litlum upphafsstaf óháð
merkingu þess. Þetta er oft órökrétt, til dæmis þegar hnettir sólkerfisins eru
nefndir. Hvernig á kennari að útskýra eftirfarandi rithátt: Merkúríus, Venus, jörð,
Mars, Júpíter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus? Krakkarnir spyrja af hverju nafn
Jarðar sé eina nafn reikistjörnu sem ekki er skrifað með stórum staf. Hnötturinn
okkar heitir Jörð og sérnöfn skal skrifa með stórum staf.
Á síðustu árum sést æ oftar rithátturinn Jörð. Í kjölfar fyrirspurnar til Íslenskrar
málnefndar svaraði nefndin mennta- og menningarmálaráðuneyti í maí 2011 og
taldi að sérnafnatúlkun ætti rétt á sér þegar rætt væri um reikistjörnuna Jörð.
Ruglingi veldur að orðið jörð er líka samnafn, merkir t.d. bújörð, mold og yfirborð
lands. Það getur stundum verið matsatriði hvort skrifa á jörð eða Jörð en oftast
er það þó nokkuð skýrt. Í þessu hefti er skrifað Jörð þegar það er talið við hæfi.
1,2,3,4,5,6,7,8,9 11,12,13,14,15,16,17,18,19,20,...68